Eftirlit með sveitarfélögum samkvæmt 102. og 103. gr. sveitastjórnarlaga nr. 45/1998

Saga sveitarfélaga á Íslandi er löng. Sveitarfélögin voru lengst af sjálfstæð en sjálfstæði þeirra var formlega afnumið árið 1809 og endurheimtu þau sjálfstæði sitt 4. maí 1872. Í 78. gr. stjórnarskrár Íslands er ákvæði um sjálfstjórn sveitarfélaga og tryggir það þeim vissan sjálfstjórnarrétt. Það h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Linda Margrét Sigurðardóttir 1983-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7512
Description
Summary:Saga sveitarfélaga á Íslandi er löng. Sveitarfélögin voru lengst af sjálfstæð en sjálfstæði þeirra var formlega afnumið árið 1809 og endurheimtu þau sjálfstæði sitt 4. maí 1872. Í 78. gr. stjórnarskrár Íslands er ákvæði um sjálfstjórn sveitarfélaga og tryggir það þeim vissan sjálfstjórnarrétt. Það hefur verið talið samræmast sjálfstjórnarréttinum að ríkið hafi eftirlit með sveitarfélögum og er það er í höndum Alþingis að ákveða með hvaða hætti slíku eftirlit er háttað. Í þessari ritgerð er fjallað um þetta eftirlit sem kveðið er á um í 102. og 103. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Fjallað er um hvaða áhrif sjálfstjórnarréttur sveitarfélaga hefur á slíkt eftirlit. Ítarlega er fjallað um hvernig eftirlitinu er hagað í framkvæmd og hvernig það hefur þróast. Stuðst er við úrskurði og álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins einnig er litið til álita umboðsmanns Alþingis. Einnig er fjallað um helstu málsmeðferðarreglur sem sveitarstjórnir eiga að taka tillit til þegar þær taka ákvarðanir. Einnig er fjallað um þau ákvæði framvarps að nýjum sveitarstjórnarlögum sem snúa að eftirlit ríkisins með sveitarfélögum. Sökum þess hve víðtækt ákvæði 1. mgr. 103. gr. svsl. hefur ráðuneytið túlkað úrskurðarvald sitt í málefnum sveitarfélaga rúmt. Í frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga er þessari þróun snúið við og ákvæðið þrengt til muna. Farið er yfir breytingar á heimildum ráðuneytisins til eftirlits með sveitarfélögum sem koma til með að eiga sér stað verði frumvarpið að lögum án breytinga. History of local government in Iceland is long. Local governments were for the most part independent but their independence was formally abolished in 1809 and regained on 4 May 1872. Article 78th of the Icelandic constitution ensures the local governments certain political rights. It has been considered consistent with the political right that the state government has supervision with the local governments; it is the responsibility of the parliament to decide how such supervision is conducted. This thesis covers this ...