Sviðslistahátíðin artFart. Menningarlegt gildi í íslensku sviðslistalífi

Á seinasta áratug hefur verið sprenging í fjölda hátíða á Íslandi. Þær eru hægt að finna um allt land og er markmið þeirra og tilgangur jafn fjölbreyttur og þær eru margar. Í Reykjavík má einnig finna margar hátíðir og þá sérstaklega innan listageirans. Má þar nefna Listahátíð í Reykjavík, Reykjavík...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásgerður Guðrún Gunnarsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7462
Description
Summary:Á seinasta áratug hefur verið sprenging í fjölda hátíða á Íslandi. Þær eru hægt að finna um allt land og er markmið þeirra og tilgangur jafn fjölbreyttur og þær eru margar. Í Reykjavík má einnig finna margar hátíðir og þá sérstaklega innan listageirans. Má þar nefna Listahátíð í Reykjavík, Reykjavík Dance Festival, Reykjavík International Film Festival og Sviðslistahátíðina artFart. Sú síðastnefnda hefur verið haldin árlega frá því að hún var stofnuð, árið 2006. Hún hefur stækkað gríðarlega á seinustu fimm árum og er óhætt að segja að hún sé orðin fastur punktur í tilveru margra leiklistaráhugamanna sem og ungra sviðslistamanna á Íslandi. Eftir fimm ár er hátíðin á tímamótum. Hin gríðarlega stækkun hefur gert það að verkum að endurskoða þarf uppbyggingu og stjórnun hennar og velta fyrir sér hlutverki hennar í íslensku menningarlífi. Af þeim sökum, er nauðsynlegt að spyrja; Hvert er menningarlegt gildi artFart í íslensku sviðslistalífi? Tilgangur þessarar ritgerðar er að komast að niðurstöðu í gegnum skoðun á félagslegum, fræðilegum og sögulegum þáttum í tengslum við framkvæmd hennar árið 2010. Fjallað verður stuttlega um menningarlandslag Reykjavíkurborgar og verður umhverfið árið 2006 sérstaklega skoðað, er hátíðin hóf göngu sína. Fjallað verður um hátíðina sjálfa, markmið hennar, hlutverk og sögu. Þá verður litið á hátíðina út frá fræðilegum grundvelli í tengslum við hugmyndir um menningarlegt gildi, vald, tilraunir innan leiklistarformsins og neyslu. Þvínæst verður framkvæmd artFart 2010 útlistuð þar sem gert verður grein fyrir ferli hennar og þróun frá september 2009 til september 2010. Einnig verður fjallað um áhrif hátíðarinnar á íslenskt sviðslistaumhverfi. Sá kafli er byggður á spurningum og svörum sviðslistamanna sem tekið hafa þátt í hátíðinni og einnig einstaklinga innan menningargeirans sem hafa fylgst með hátíðinni síðastliðin fimm ár. Má þar nefna sviðslistamenn, gagnrýnendur og kennara við leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Loks verður ályktað um framtíð hátíðarinnar, út frá svörum viðmælenda í ...