Eldfjallagarður og jarðminjasvæði á Reykjanesskaga

Í ritgerðinni er fjallað um jarðminjasvæði á Reykjanesskaga í tengslum við uppbyggingu eldfjallagarðs á svæðinu. Farið er yfir landfræðilega legu skagans, jarðfræðirannsóknir og fjallað almennt um ástæður eldvirkninnar. Helstu jarðmyndunum eldfjallalandslagsins er lýst og fjallað er um jarðfræðilega...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helgi Páll Jónsson 1977-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7449
Description
Summary:Í ritgerðinni er fjallað um jarðminjasvæði á Reykjanesskaga í tengslum við uppbyggingu eldfjallagarðs á svæðinu. Farið er yfir landfræðilega legu skagans, jarðfræðirannsóknir og fjallað almennt um ástæður eldvirkninnar. Helstu jarðmyndunum eldfjallalandslagsins er lýst og fjallað er um jarðfræðilega fjölbreytni, jarðfræðilega arfleifð og jarðfræðitengda ferðaþjónustu sem mun gegna veigamiklu hlutverki í eldfjallagarði verði hann byggður upp á svæðinu. Megininntak ritgerðarinnar er lýsing á 14 jarðminjasvæðum á skaganum sem kæmu til greina sem lykil- eða ítarsvæði í eldfjallagarði, verði ákveðið að skipuleggja hann úr frá slíku svæðisvali. Fjallað er um þessi svæði sem voru skoðuð í vettvangsvinnu og rætt um þær jarðminjar og jarðlög sem þar er að finna. Niðurstöður eru helstar að Reykjanesskagi henti vel sem eldfjallagarðssvæði fyrir jarðfræðitengda ferðaþjónustu vegna legu sinnar nálægt höfuðborg og alþjóðaflugvelli en ekki síður vegna hinna fjölbreyttu eldvarpa og gosminja. Náttúruvernd á skaganum er ábótavant en góð skipulagning á eldfjallagarði gæti stuðlað að úrbótum í þeim efnum og betri kynningu á svæðinu fyrir almenningi. Svæðin sem valin voru til umfjöllunar eru misjafnlega stór og aðgengileg. Þau eru fjölbreytt hvað varðar eldvirkniferli og ná allt frá Reykjanesi austur í Reykjanesfólkvang. Finnast þar flestar gerðir landforma og eldvarpa sem einkenna skagann og eru þau talin henta vel í eldfjallagarði sem byggður yrði upp í kringum ákveðin jarðminjasvæði. The topic of this thesis is the Reykjanesskagi peninsula in southwestern Iceland and the establishment of a future volcanic park in the area. The first chapters will give an overview of the geography, geology, volcanism and geological research. The volcanic landscape is described and several concepts such as geodiversity, geoheritage and geotourism are discussed, but geotourism will be an important part of a future volcanic park in the area. The main part of the thesis discusses 14 areas selected as special geosites on the peninsula. The areas were ...