Íþróttaviðburðir og ferðamennska í Vestmannaeyjum

Í þessari ritgerð er fjallað um íþróttatengda ferðamennsku með sérstakri áherslu á íþróttaviðburði í Vestmannaeyjum. Íþróttaferðamennska er ekki nýtt fyrirbæri en er þó grein sem talið er að muni fara ört vaxandi á næstu árum. Ferðamennska sem tengist íþróttaviðburðum er stór hluti af íþróttaferðame...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Auður Olga Skúladóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7332
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um íþróttatengda ferðamennsku með sérstakri áherslu á íþróttaviðburði í Vestmannaeyjum. Íþróttaferðamennska er ekki nýtt fyrirbæri en er þó grein sem talið er að muni fara ört vaxandi á næstu árum. Ferðamennska sem tengist íþróttaviðburðum er stór hluti af íþróttaferðamennsku um allan heim og eru efnahagsleg áhrif þeirra efni rannsókna hjá mörgum fræðimönnum. Í Vestmannaeyjum eru haldnir ýmsir íþróttaviðburðir ár hvert og er ferðamennska vegna þeirra töluverð. Þeir íþróttaviðburðir sem eru mest áberandi eru íþróttamót fyrir börn í fótbolta og golfmót. Nokkur samvinna er til staðar milli skipuleggjenda íþróttamóta og ferðaþjónustuaðila, en gæti þó verið meiri. Einnig er Vestmannaeyjabær í samstarfi við ÍBV íþróttafélag, sem skipuleggur stærstu íþróttamótin í Eyjum. Íþróttaviðburðir eiga sinn þátt í markaðssetningu Vestmannaeyja sem áfangastaðar og eiga fjölmiðlar þar einnig hlut að máli með því að auglýsa viðburðina. Íþróttamótin hafa góð áhrif á ferðaþjónustu og þjónustugeira Vestmannaeyja og binda margir vonir við að tilkoma Landeyjahafnar, nýju hafnarinnar sem Herjólfur siglir nú til, geti aukið íþróttatengda ferðamennsku í Vestmannaeyjum.