TAIEX. Main characteristics and implementation in Iceland

Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvað TAIEX (Technical Assistance and Information Exchange Instrument) er og fjalla um innleiðingu þess á Íslandi. TAIEX er eitt þeirra úrræða sem standa umsóknarríkjum Evrópusambandsins (ESB) til boða til að aðstoða þau við að mæta þeim kröfum sem ætlas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gyða Einarsdóttir 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7254
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvað TAIEX (Technical Assistance and Information Exchange Instrument) er og fjalla um innleiðingu þess á Íslandi. TAIEX er eitt þeirra úrræða sem standa umsóknarríkjum Evrópusambandsins (ESB) til boða til að aðstoða þau við að mæta þeim kröfum sem ætlast er til að búið sé að uppfylla þegar gengið er í Evrópusambandið. Aðstoðin er aðgengileg meðan á umsóknarferlinu stendur og er hluti af fjölþegaáætlunum IPA (Instrument for Pre-accession Assistance Multi-beneficiary Programmes). Nokkur umræða hefur verið um þetta tæki í tengslum við svokallað aðlögunarferli. Takmörkuð þekking er hins vegar til staðar á Íslandi á TAIEX og er ritgerðinni ætlað að bæta þar úr. Í henni er TAIEX lýst, hugmyndafræðinni sem það er sprottið úr, tilgangi þess og hvernig það hefur verið innleitt. Einnig er fjallað um innleiðingu þess á Íslandi. Þá er gerð grein fyrir því umhverfi sem ríkir á Íslandi í stjórnmálum og innan stjórnsýslunnar, sem TAIEX er nú hluti af, og umsóknarferli Íslendinga hingað til. Verkefnið er „skrifborðsrannsókn“ (secondary research) sem felur í sér greiningu á birtu efni, svo sem fræðiritum, skýrslum, lögum og reglum. Óheimilt er að prenta verkið eð afrita það.