Barnaefni eða Bachelor? : hvaða efni kjósa börn að horfa á í sjónvarpi?

Miklar breytingar hafa orðið á sjónvarpsáhorfi Íslendinga enda hefur fjölmiðlamarkaðurinn breyst mikið á skömmum tíma. Í þessari rannsókn er leitast við að varpa ljósi á það sem börn og unglingar á aldrinum 10 til 15 ára kjósa að horfa á í sjónvarpi. Notast var við gögn úr langtímarannsókninni Börn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagmar Ýr Stefánsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/725
Description
Summary:Miklar breytingar hafa orðið á sjónvarpsáhorfi Íslendinga enda hefur fjölmiðlamarkaðurinn breyst mikið á skömmum tíma. Í þessari rannsókn er leitast við að varpa ljósi á það sem börn og unglingar á aldrinum 10 til 15 ára kjósa að horfa á í sjónvarpi. Notast var við gögn úr langtímarannsókninni Börn og sjónvarp á Íslandi frá árinu 2003 sem náði til barna á þremur stöðum á landinu, í Reykjavík, Vestmannaeyjum og á Akureyri. Upplýsingar um sjónvarpsáhorf voru fengnar með því að láta þátttakendur fylla út þar til gerða dagbók og kom þá fram allt það efni sem þau höfðu horft á vikuna 12. til 18. mars. Hér er veitt yfirsýn yfir þá dagskrárliði sem mest áhorf var á hvern dag vikunnar. Allt það efni sem var á dagskrá umrædda viku var síðan flokkað í 13 sérstaka efnisflokka til að greina hvort aldurs- eða kynjabundinn munur væri á sjónvarpsáhorfinu. Í ljós kom að raunveruleika- og gamanefni er vinsælast hjá krökkunum og að stúlkur horfa marktækt meira en piltar á þessa tvo efnisflokka. Þá kom í ljós að yngstu krakkarnir horfa meira en þau eldri á barnaefni og að elstu krakkarnir horfa meira á menningar-, lífstíls-, og viðtalsefni. Ekki reyndist vera munur milli kynjanna eða aldursflokka hvað varðar áhorf á annað efni. Stelpur reyndust horfa meira á sjónvarp yfirhöfuð en drengir. Á þeim tíma sem könnunin var lögð fyrir má segja að íslensk börn hafi í raun í fyrsta skipti haft raunverulegt val um hvað horft er á í sjónvarpi. Niðurstöðurnar eru því mikilsverð vísbending um þá þróun sem kann að eiga sér stað á næstu árum.