Trúfrelsi og jafnrétti trúfélaga

Í 63. og 64. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 er mælt fyrir um trúfrelsi. Í 63. gr. segir að allir eigi rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Í 64. gr. kemur fram sú regla að ekki megi skylda neinn til aðildar að tilteknu trúfélagi, og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnar Már Jakobsson 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/7164
Description
Summary:Í 63. og 64. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 er mælt fyrir um trúfrelsi. Í 63. gr. segir að allir eigi rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Í 64. gr. kemur fram sú regla að ekki megi skylda neinn til aðildar að tilteknu trúfélagi, og verndar reglan því að sama skapi rétt manna til að standa utan trúfélaga. Í ákvæðinu segir einnig að enginn megi neins í missa af borgaralegum og þjóðlegum réttindum fyrir sakir trúarbragða sinna og er reglan því nátengd reglunni um jafnræði borgaranna sem lögfest hefur verið í 65. gr. stjskr. Á það hefur verið bent að ákvæði 62. gr. stjskr. sem mælir fyrir um sérstöðu hinnar evangelísku lútersku kirkju og skyldu ríkisins til að styðja og vernda hana, samrýmist illa grundvallarreglum um trúfrelsi og jafnræði. Erfitt getur reynst, og jafnvel ómögulegt, að halda bæði 62. og 65. gr. í heiðri, enda gengur tilgangur ákvæðanna hvor í sína áttina. Á Íslandi nýtur Þjóðkirkjan mun sterkari stöðu en önnur trúfélög í landinu. Helgast þetta af fyrrgreindu ákvæði 62. gr. og af ráðandi stöðu hennar að öðru leyti, bæði með tilliti til sögu kirkjunnar og fjölda skráðra meðlima hennar, svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að færa rök fyrir því að sum þeirra sérréttinda sem Þjóðkirkjan nýtur að lögum byggist ekki á lögmætum og málefnalegum forsendum. Mætti þar nefna sem dæmi ýmiss konar fjárveitingar í hennar þágu sem önnur trúfélög geta ekki gert tilkall til. Á þetta álitaefni hefur m.a. reynt í Hrd. frá 27. október 2008 í máli Ásatrúarfélagsins gegn íslenska ríkinu, en þar krafðist stefnandi þess, sem er skráð trúfélag á grundvelli laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög að sér yrði tryggður sami fjárhagslegi stuðningur og Þjóðkirkjan, enda væri staða þeirra sambærileg að flestu leyti. Á vegum alþjóðlegra eftirlitsstofnana með mannréttindasamningum sem Ísland hefur fullgilt hefur nokkuð verið fjallað um jafnrétti trúfélaga og hið svokallaða ríkiskirkjukerfi sem veitir einu trúfélagi sérstöðu í lögum umfram önnur. Þrátt fyrir að hafa ekki lýst ...