Félags- og tómstundatilboð í grunnskólum Akureyrar : geta börn og unglingar með fatlanir nýtt sér þau?

Viðfangsefni þessa verkefnis var rannsókn á því hvort 10 - 16 börn og unglingar með fatlanir gætu nýtt sér tilboð Akureyrarbæjar á félags- og tómstundastarfi innan og utan skóla. Gerð er grein fyrir lögum um réttindi barna og unglinga til félags- og tómstundastarfs og hvaða skyldur bæjarfélagið hefu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Þorsteinsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/698
Description
Summary:Viðfangsefni þessa verkefnis var rannsókn á því hvort 10 - 16 börn og unglingar með fatlanir gætu nýtt sér tilboð Akureyrarbæjar á félags- og tómstundastarfi innan og utan skóla. Gerð er grein fyrir lögum um réttindi barna og unglinga til félags- og tómstundastarfs og hvaða skyldur bæjarfélagið hefur samkvæmt þeim. Fjallað var um þroskaferil barna og unglinga og gildi félags- og tómstundastarfs í uppvexti þeirra. Rannsókn var gerð á þátttöku 10-16 ára barna og unglinga með fatlanir, í félags- og tómstundastarfi á vegum Akureyrarbæjar. Rannsóknin var bæði eigindleg og megindleg. Viðtöl voru tekin við þrjár mæður sem eiga börn í markhópnum og spurningalistar sendir til annarra þátttakenda. Niðurstaðan úr rannsókninni er sú að bæjarfélagið uppfyllti skyldur um aðgengi fyrir fatlaða. En aðstoð sem honum ber skylda til að veita samkvæmt lögum um jafnan rétt til þátttöku markhópsins í félags- og tómstundastarfi var ekki til staðar. Fram kom í rannsókninni að upplýsingar til notenda og foreldra þeirra voru ekki nægar um réttindi þeirra og skyldur bæjarfélagsins að framfylgja þeim.