Framkvæmd nauðungarsölu á Íslandi

Í þessari ritgerð er farið yfir framkvæmd nauðungarsölu á Íslandi og sérstaklega er skoðuð framkvæmdin hjá fjórum sýslumannsembættum. Fjallað er um undanfara núverandi laga, lög um nauðungaruppboð nr. 57/1949 og hvernig framkvæmdin var í tíð þeirra laga. Farið yfir lög um aðskilnað dómsvalds og umbo...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sunna Ósk Friðbertsdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6918
Description
Summary:Í þessari ritgerð er farið yfir framkvæmd nauðungarsölu á Íslandi og sérstaklega er skoðuð framkvæmdin hjá fjórum sýslumannsembættum. Fjallað er um undanfara núverandi laga, lög um nauðungaruppboð nr. 57/1949 og hvernig framkvæmdin var í tíð þeirra laga. Farið yfir lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds nr. 92/1989 og breytingarnar sem fylgdu í kjölfarið með setningu núverandi laga um nauðungarsölu nr. 90/1991. Ásamt því eru reglur nýrra laga um nauðungarsölu skoðaðar, hvernig framkvæmdinni á að vera háttað samkvæmt þeim og reglurnar bornar saman við dómaframkvæmd. Að lokum er sagt frá framkvæmd nauðungarsölu í Danmörku samkvæmt dönsku réttarfarslögunum og hún borin saman við framkvæmdina hérlendis. Markmið ritgerðarinnar er að skoða hvort munur er á framkvæmd nauðungarsölu milli embætta sýslumanna á Íslandi. Lagður var spurningalisti fyrir fjögur embætti sýslumanna á Íslandi um framkvæmd nauðungarsölu í þeirra umdæmi. Þetta voru sýslumaðurinn á Akureyri, í Hafnarfirði, á Ísafirði og í Reykjavík. Verða svör þeirra borin saman til þess að reyna að greina hvort og þá hversu mikill munur er á framkvæmd milli embætta og ályktað út frá því hvort framkvæmd er í samræmi við lögin. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að framkvæmdin virðist ekki vera eins á öllum stöðum. Um er að ræða þónokkurn mun og má þar helst nefna að gerðarþola er leiðbeint mismikið um ferli nauðungarsölunnar og einnig er mismunandi hversu mikið embættin leggja á sig við að ná í gerðarþola fyrir framhaldssölu. Þegar framkvæmdin var borin saman við ákvæði dönsku réttarfarslaganna er ljóst að mikill munur er á lagaákvæðum varðandi nauðungarsölu í löndunum tveimur. Sá munur felst einna helst í því að í Danmörku er lagt mun meira upp úr því að leiðbeina gerðarþola um réttindi hans í nauðungarsöluferlinu og um áhrif nauðungarsölunnar. This thesis deals with the execution of forced sale in Iceland and in particular the actual process at four different district commissioners. The introduction of the present legislation, and also the act on ...