Þegar Katla gýs : viðbúnaðaráætlun fyrir leikskólann Suður-Vík

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð hefur höfundur unnið viðbúnaðar- og viðbragðsáætlun fyrir leikskólann Suður-Vík, byggða á þekkingu á eðli eldstöðvar undir Mýrdalsjökli sem ber heitið Katla. Jarðfræði hennar og saga fyrri gosa hefur gert yfirvöldum kle...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjördís Rut Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/667
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð hefur höfundur unnið viðbúnaðar- og viðbragðsáætlun fyrir leikskólann Suður-Vík, byggða á þekkingu á eðli eldstöðvar undir Mýrdalsjökli sem ber heitið Katla. Jarðfræði hennar og saga fyrri gosa hefur gert yfirvöldum kleift að hanna viðbragðs- og viðbúnaðaráætlanir sem grípa þarf til ef/þegar gos í Kötlu hefst. Slíkar áætlanir ná hinsvegar nær einungis til ytra umhverfis, en ekki innra skipulags stofnanna á borð við leikskóla sveitarfélagsins. Náttúrufegurðin í Mýrdalnum er einstök og íbúar svæðisins öfundsverðir af búsetu sinni. En þrátt fyrir friðsæld og stóíska ró, sem oft er sögð einkenna Skaftfellinga, vita Mýrdælingar vel af ógninni sem þeir búa við. Þessi ógn er sú, að undir jöklinum sem yfir sveitinni gnæfir, kraumar eldstöðin Katla. Eldstöðin á sína sérstöku jarðfræðisögu og samkvæmt gossögu hennar getur hún gosið hvenær sem er. Vísindamenn fylgjast vel með hegðun eldstöðvarinnar og gera viðvart ef vart verður við óróleika innan hennar sem benda til goss. Þá fara í gang hinar ýmsu áætlanir á vegum stjórnvalda, til að auka öryggi íbúa svæðisins við slíkar nátúruhamfarir. Sú ógn sem stafar af því að búa í nágrenni Kötlu má ekki gleymast og viðbúnaður og fræðsla fyrir hverja kynslóð þarf að vera í örri þróun. Íbúum til hægðarauka í því starfi hefur sú kynslóð sem uppi var við síðustu gos skráð greinargóðar lýsingar á fyrri gosum, sem kynslóðin sem tekin er við núna getur nýtt sér við viðbúnaðarstörf á svæðinu. Síðast varð gos í Kötlu árið 1918 og er í dag árið 2007, talað um, að það sé komin tími á næsta gos. Nýverið fór fram æfing á þeim viðbúnaði sem í gang fer ef gos virðist yfirvofandi og við þá vinnu sá höfundur vankanta á viðbúnaði innan leikskóla byggðarlagsins og ákvað því til bóta, að vinna að gerð viðbúnaðar- og viðbragðsáætlunnar fyrir leikskólann. Einnig vann höfundur þemaverkefni í leikskólanum í góðu samstarfi við björgunarsveit staðarins, til að kynna börnunum þá aðila sem munu verða mest áberandi ef kemur til ...