Stefnumótun í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja

Ritgerðin er lokuð til 2012 Rannsókn þessi hefur þann tilganga að kanna hvort breytingar á rekstrarumhverfi hafi haft áhrif á þróun stefnumótunar í hótelrekstri í Reykjavík. Í skýrslunni er fyrst gerð grein fyrir helstu fræðum stefnumótunar er erinda eiga við hótelrekstur. Ytra umhverfi ferðaþjónust...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tinna Ösp Brooks Skúladóttir 1977-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6649
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð til 2012 Rannsókn þessi hefur þann tilganga að kanna hvort breytingar á rekstrarumhverfi hafi haft áhrif á þróun stefnumótunar í hótelrekstri í Reykjavík. Í skýrslunni er fyrst gerð grein fyrir helstu fræðum stefnumótunar er erinda eiga við hótelrekstur. Ytra umhverfi ferðaþjónustu er síðan kynnt lauslega. Þá er rannsóknin kynnt og þær upplýsingar er öfluðust við rannsóknina eru settar fram. Upplýsingarnar eru settar fram sér fyrir hvert hótel er tók þátt í rannsókninni í framhaldi af því er gerð greining á stefnumótun hvers hótels fyrir sig og er greiningin tengd við þau fræði er tekin voru fyrir fyrr í skýrslunni. Því næst eru niðurstöður settar fram er fengust úr rannsókninni og túlkaðar. Úr niðurstöðum og túlkun þeirra ætti að fást svar við því hvort breytingar á rekstrarumhverfi höfðu áhrif á stefnumótun umræddra hótela á því tímabili sem rannsóknin náði til. Að mati höfundar er svarið að svo sé, hvort sem breytingarnar túlkast sem jákvæðar eða neikvæðar af stjórnendum þess fyrirtækis þá leiða breytingar oftast til stefnmótandi breytinga. Það mætti nefna að breyttar aðstæður í umhverfi leiddu til þess að ráðist var í byggingu turnsinns á Grand Hóteli, en góð bókunarstaða þess hótels ásamt breyttri stefnu þeirra helsta keppinauts og granna varð til þess að svo varð.