Foreldrasamstarf í leikskólum í anda Reggio Emilia

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed. –prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2007. Tilgangurinn er að skoða hvernig hægt er að gera leikskólastarf sýnilegt með sérstakri áherslu á uppeldisfræðilegar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Alda Sigurðardóttir, Jóna Björg Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/654
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed. –prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2007. Tilgangurinn er að skoða hvernig hægt er að gera leikskólastarf sýnilegt með sérstakri áherslu á uppeldisfræðilegar skráningar. Komið er inn á samstarf heimila og skóla, ábyrgð og skyldur foreldra og kennara gagnvart samstarfi. Gott samstarf heimila og skóla og samspil áður nefndra þátta ætti að leiða til bætts árangurs leikskólastarfsins í heild . Fjallað er um hvernig lög og reglugerðir varðandi foreldrasamstarf hafa þróast frá því að uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili var gefin út 1985 og til dagsins í dag. Komið er inn á nýjar leiðir til samstarfs við foreldra. Skoðað er hvernig leikskólinn Iðavöllur á Akureyri gerir starf sitt sýnilegt á heimasíðu leikskólans. Gerð er grein fyrir áherslum í foreldrasamstarfi hjá Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ og hjá Félagi leikskólakennara. Fjallað er um leikskólastarf í anda Reggio Emilia, undirstöðu fyrir nám barna, hlutverk kennarans og rétt barna og foreldra. Uppeldisfræðilegar skráningar og möguleikar sem þær bjóða er tekið til skoðunar, gerð er grein fyrir hvernig skráningar eru framkvæmdar og hvernig hægt er að gera leikskólastarf sýnilegt foreldrum. Fjallað er um túlkun skráninga og hvernig hægt er að nota þær til þróunar í starfi. Að lokum er fjallað um gagnrýni á starf í anda Reggio Emilia, og hindranir í gerð skráninga. Skráning byggir alltaf á vali þess sem skráir, þess vegna má segja að það felist val í því sem við kjósum ekki, það sýnir ákveðnar áherslur. Þegar verið er að skrá er verið að taka þátt í því að byggja eða endurbyggja líf barna og í leiðinni að setja okkar merkimiða á það sem við teljum vera mikilvægt eða merkilegt í lífi barna.