Það sem á við um einn, á ekki endilega við um annan : viðhorf starfsfólks leikskóla til vinnu með fjölmenningarlega stefnu

Viðfangsefni þessa verkefnis var að kanna viðhorf starfsfólks í leikskóla til vinnu með fjölmenningarlega kennslu. Tilgangurinn var að kanna hvernig viðmælendum fannst þeir undirbúnir til að takast á við fjölmenningarlegt starf og hvernig unnið er með þá áhersluþætti sem að fram koma í Fjölmenningar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Inga Marín Óskarsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6522
Description
Summary:Viðfangsefni þessa verkefnis var að kanna viðhorf starfsfólks í leikskóla til vinnu með fjölmenningarlega kennslu. Tilgangurinn var að kanna hvernig viðmælendum fannst þeir undirbúnir til að takast á við fjölmenningarlegt starf og hvernig unnið er með þá áhersluþætti sem að fram koma í Fjölmenningarstefnu Reykjavíkurborgar. Ég notaði eigindlega rannsóknaraðferð og tók viðtöl við sex starfsmenn í þremur leikskólum í Reykjavík. Leikskólarnir voru valdir með tilliti til mismunandi fjölda tvítyngdra barna. Aðferðina valdi ég til að fá fram reynslu og viðhorf viðmælenda. Niðurstöður benda til þess að þátttakendur séu almennt jákvæðir gagnvart vinnu með fjölmenningu. Það er vilji til þess að mæta ólíkum þörfum barnanna. Einstakir þættir eru unnir samkvæmt fjölmenningarstefnunni en mismunandi er hvernig það er gert. Þátttakendur voru á einu máli um að efla þyrfti foreldrasamstarf og ekki var alls staðar unnið markvisst í kennslu íslensku sem viðbótarmáli. Það þarf skipulag í kennsluaðferðum og stefnumótun þarf að vera skýrari innan skóla.