Einstaklingsmiðað nám í grunnskólum

Einstaklingsmiðað nám er kennslufræðileg heimspeki sem byggir á kenningum um ólíkan námsstíl, fjölgreind og einstaklingsmun þar sem hvetjandi námsumhverfi, sveigjanleiki og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir í fyrirrúmi. Aðferðin snýst um mikilvægi þess að koma til móts við mismunandi þarfir hver...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6495
Description
Summary:Einstaklingsmiðað nám er kennslufræðileg heimspeki sem byggir á kenningum um ólíkan námsstíl, fjölgreind og einstaklingsmun þar sem hvetjandi námsumhverfi, sveigjanleiki og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir í fyrirrúmi. Aðferðin snýst um mikilvægi þess að koma til móts við mismunandi þarfir hvers nemanda þannig að sá hinn sami öðlist hámarksárangur í náminu. Hugmyndir einstaklingsmiðaðs náms eiga sér rætur í hugmyndasögu uppeldis og mennta en fylgismenn kennslufræðinnar sækja meðal annars í hugmyndir kennimanna á borð við Jean- Jacques Rousseau, John Dewey, Maria Montessori og Jean Piaget. Menntastefnan hefur hlotið vaxandi fylgist í mörgum löndum og hafa nýlegar rannsóknir sýnt aukinn vilja kennara hér á landi á því að taka upp fyrrgreinda kennsluaðferð. Í sömu rannsóknum hafa niðurstöður hins vegar sýnt að þrátt fyrir vilja kennara notist flestir skólar hérlendis nær eingöngu við hefðbundna kennslu í formi bekkjarkennslu. Slíkar niðurstöður eru í bága við þær áherslur sem stjórnvöld hafa reynt að stuðla að undanfarin ár, með markvissri stefnumótun um að færa nám og kennslu i meira einstaklingsmiðaðra form.