Útinám og útikennsla í Ólafsfirði

Þetta er lokaverkefni til B.Ed. prófs frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Tilgangur þessa verkefnis er að stuðla að eflingu útikennslu og útináms í Ólafsfirði. Verkefnið byggist á verkefnasafni sem er ætlað að kynna útinám og útikennslu sem námsmöguleika í grunnskólanum og úti í samfélaginu. Ver...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólöf Kristín Ásgeirsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6473
Description
Summary:Þetta er lokaverkefni til B.Ed. prófs frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Tilgangur þessa verkefnis er að stuðla að eflingu útikennslu og útináms í Ólafsfirði. Verkefnið byggist á verkefnasafni sem er ætlað að kynna útinám og útikennslu sem námsmöguleika í grunnskólanum og úti í samfélaginu. Verkefnasafnið byggist á hugmyndafræði Johns Dewey þar sem lögð er áhersla á að nemendur prófi sjálfir og fái að upplifa námið á lifandi máta og komast í nána snertingu við viðfangsefnið. Ég hef einnig stuðst við fjölgreindakenningu Gardners, en í henni er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og úrvinnslu og hef ég lagt sérstaka áherslu á úrvinnsluþáttinn með það í huga að kynna aðferðirnar fyrir nemendum. Gardner leggur einmitt áherslu á að nemendur fái tækifæri til þess að nota hæfileika sína og tel ég að til þess að það sé mögulegt þá sé nauðsynlegt að nemendur fái að prófa sem flestar aðferðir og fái þar með tækifæri til þess að finna hvernig og hvar hæfileikar þeirra njóta sín sem best.