Lítum okkur nær : um grenndarkennslu við Grunnskóla Siglufjarðar
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands á vormisseri 2010. Umfjöllunarefnið er grenndarkennsla við Grunnskóla Siglufjarðar með sérstaka áherslu á Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði. Grenndarkennsla er kennsluaðferð sem gerir ráð fyrir að nemendur...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/6470 |
Summary: | Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands á vormisseri 2010. Umfjöllunarefnið er grenndarkennsla við Grunnskóla Siglufjarðar með sérstaka áherslu á Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði. Grenndarkennsla er kennsluaðferð sem gerir ráð fyrir að nemendur nýti umhverfi sitt og nærsamfélag við námið. Heimabyggðin býður upp á ótal möguleika fyrir grunnskólakennara til þess að auka skilning nemenda á auðlindum hennar. Einstaklingur sem býr yfir góðri grenndarvitund, söguvitund og umhverfisvitund hefur öðlast verðmæti sem eru ómetanleg. Margar kennsluaðferðir samrýmast vel grenndarkennslu og verður fjallað um þær í ritgerðinni. Einnig verður sagt frá hugmyndafræði þekktra fræðimanna á borð við Rousseau og Dewey. Heimsókn á safn stuðlar að því að nemendur kynnist sögu og menningu á áþreifanlegri hátt en í kennslubókum. Saga Síldarminjasafns Íslands verður rakin í stórum dráttum og sagt frá síldarævintýrinu. Í lok ritgerðarinnar koma hugmyndir um verkefni sem kennarar við Grunnskóla Siglufjarðar gætu nýtt sér í samstarfi við Síldarminjasafn Íslands. |
---|