Vögur, moggar og maðir : fleirtölumyndun barna í 1.-4. bekk

Í þessari ritgerð er fyrst fjallað lítillega um tungumálið og sérkenni þess. Rakin eru helstu einkenni beygingarkerfisins, sá hluti þess sem snýr að nafnorðum. Einkum er þar sjónum beint að fleirtölumyndun kvenkyns- karlkyns- og hvorugkynsorða þar sem fleirtölumyndunin er grundvallaratriði í rannsók...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Viktoría Unnur Viktorsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6459
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fyrst fjallað lítillega um tungumálið og sérkenni þess. Rakin eru helstu einkenni beygingarkerfisins, sá hluti þess sem snýr að nafnorðum. Einkum er þar sjónum beint að fleirtölumyndun kvenkyns- karlkyns- og hvorugkynsorða þar sem fleirtölumyndunin er grundvallaratriði í rannsókninni eins og síðar kemur fram. Þá er sagt frá þremur íslenskum rannsóknum sem fjalla um fleirtölumyndun ungra barna og niðurstöðum úr þeim gerð skil í stuttu máli. Í framhaldi af því er sagt frá nýrri rannsókn sem gerð var nú á vorönn 2010. Fleirtölupróf var lagt fyrir 40 nemendur í 1., 2., 3. og 4. bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Í prófinu áttu börnin að mynda fleirtölu, fyrst af raunorðum, þ.e. orðum sem þekkt eru og viðurkennd í málinu og eftir það fengu þau svokölluð bullorð, orð sem formsins vegna gætu tilheyrt tungumálinu en eru þó ekki notuð né viðurkennd, þ.e. merkingarlaus en svipuð að uppbyggingu og raunorðin. Niðurstöður úr þeirri rannsókn eru svo reifaðar og ræddar í umræðukafla.