Hreyfing leikskólabarna

Verkefnið er lokað Í verkefni þessu er fjallað um hreyfingu leikskólabarna. Unnið er út frá þeim spurningum hvort leikskólabörn fái þá hreyfingu sem þau þurfa og hvernig aðstaðan til hreyfingar sé í leikskólum Akureyrarbæjar. Fjallað er um hreyfi- og líkamsþroska barna frá fæðingu og fram að sex ára...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helena Sif Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/642
Description
Summary:Verkefnið er lokað Í verkefni þessu er fjallað um hreyfingu leikskólabarna. Unnið er út frá þeim spurningum hvort leikskólabörn fái þá hreyfingu sem þau þurfa og hvernig aðstaðan til hreyfingar sé í leikskólum Akureyrarbæjar. Fjallað er um hreyfi- og líkamsþroska barna frá fæðingu og fram að sex ára aldri. Farið er í þroskaferlið og sagt frá því hversu mikilvægt það er fyrstu árin. Hlutverk leikskóla í að skapa góða aðstöðu til hreyfingar er rakið og sagt frá því hversu mikilvægt það er fyrir barn að fá þá hreyfingu sem það þarf í leikskólanum. Fjallað er um offitu og sagt frá hvernig hægt sé að aðstoða barn sem glímir við það vandamál. Einnig er fjallað um einhverfu, fyrst almennt þar er sagt frá því hvernig einhverfa lýsir sér, en þar á eftir er fjallað um börn með einhverfu það er hvernig barn sem glímir við þann sjúkdóm hegðar sér og hvernig einhverfa er greind. Síðan er fjallað um hreyfigetu einhverfra barna og hvernig þeirra geta í hreyfileikjum er. Leitað var eftir svörum frá einum af leikskólum Akureyrarbæjar um getu einhverfs barns í hreyfileikjum. Í síðari hluta ritgerðarinnar er rannsókn sem gerð var í leikskólum Akureyrabæjar þar sem athugað var hvernig þeir uppfylla þá þörf sem börn hafa til að hreyfa sig. Þar kemur meðal annars fram að leikskólarnir sem tóku þátt í könnunni eru allir að vinna með hreyfingu en eru misvel búnir til að veita börnunum þá aðstöðu sem þau þurfa til hreyfingar.