Undirbúningur stöðlunar á WASI og samanburður við íslenska þýðingu á WAIS-III

Hér er fjallað um tvær rannsóknir. Rannsókn 1 er undirbúningur fyrir íslenska stöðlun á greindarprófinu Wechsler Abbreviated Scale of Intelligence (WASI) fyrir fullorðna á aldrinum 17-64 ára. Prófið var lagt fyrir 83 þátttakendur á norðurlandi til að safna gögnum til stöðlunar prófsins á landsvísu....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Sigríður Jökulsdóttir 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6381
Description
Summary:Hér er fjallað um tvær rannsóknir. Rannsókn 1 er undirbúningur fyrir íslenska stöðlun á greindarprófinu Wechsler Abbreviated Scale of Intelligence (WASI) fyrir fullorðna á aldrinum 17-64 ára. Prófið var lagt fyrir 83 þátttakendur á norðurlandi til að safna gögnum til stöðlunar prófsins á landsvísu. Þátttakendur voru valdir með hentugleika í lagskiptu kvótaúrtaki. Flestir voru starfsmenn fyrirtækja og stofnana eða fólk af atvinnuleysisskrá. Meðalaldur var 34,8 ár og staðalfrávik 13,8. Karlar voru 42 og konur 41. Megin niðurstöur eru að marktækur munur er á meðaltali heildarstiga eftir aldursbilum á undirprófunum Orðskilningur og Litafletir en ekki á undirprófunum Rökþrautir og Líkingar. Ekki var marktækur munur á meðaltali heildarstiga undirprófa eftir kyni. Meðaltal heildarstiga er hærra á öllum undirprófum eftir hærra menntunarstigi nema að því leyti að á Rökþrautum og Líkingum er meðaltal lægra hjá iðn- og sérmenntuðum en þeim sem eru með grunnskólapróf. Rannsókn 2 er samanburður á íslenskri útgáfu WASI og íslenskri þýðingu á Wechsler Adult Intelligence Scale-Third Edition (WAIS-III). Markmið var að kanna mun á frammistöðu fullorðinna íslendinga á Wechsler greindarprófi þegar annars vegar var notuð stutt útgáfa og mælitölur reiknaðar út frá bráðabirgðanormum sem byggja á stöðlun prófsins hér á landi og hins vegar sambærileg undirpróf lengri útgáfu prófsins sem hefur verið þýtt og staðfært hérlendis. Þátttakendur voru 51, flestir starfsmenn fyrirtækja og stofnana eða fólk af atvinnuleysisskrá. Þeir voru á aldrinum 35-44 ára, meðalaldur var 39,63 og staðalfrávik 2,74. Konur voru 30 eða 59% og karlar voru 21 eða 41% þátttakenda. Helstu niðurstöður eru að marktækur munur er á meðaltali mælitalna á öllum undirprófum WASI borið saman við sambærileg undirpróf WAIS-III. Meðaltal er hærra á WAIS-III en WASI á þremur undirprófum (Rökþrautum, Orðskilningi og Líkingum) en lægra á einu (Litaflötum). Það bendir til að líklega fái sami einstaklingur hærri mælitölu á þremur af fjórum undirprófum sem skoðuð voru ef þýdd og ...