Hagsmunir og velferð barna sem leiðarljós í starfi : rannsókn á þekkingu leikskólastarfsfólks á Akureyri á ofbeldi og vanrækslu á börnum og tilkynningarskyldu til barnaverndarnefndar
Þetta lokaverkefni fjallar um rannsókn sem gerð var meðal starfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar. Notast var við sama spurningarlista og Sandra Anne Marie Vachon notaði þegar hún framkvæmdi samskonar rannsókn á Selfossi 2007 (Sandra Anne Marie Vachon, 2007). Spurningalistarnir voru lagðir fyrir sta...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/6373 |
Summary: | Þetta lokaverkefni fjallar um rannsókn sem gerð var meðal starfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar. Notast var við sama spurningarlista og Sandra Anne Marie Vachon notaði þegar hún framkvæmdi samskonar rannsókn á Selfossi 2007 (Sandra Anne Marie Vachon, 2007). Spurningalistarnir voru lagðir fyrir starfsfólk í níu leikskólum Akureyrarbæjar. Samtals 152 listar voru sendir út og 129 komu tilbaka útfylltir, svarhlutfall var því 85%. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hver þekking starfsfólk í leikskólum Akureyrarbæjar er á tilkynningarskyldu til barnaverndaryfirvalda vegna ofbeldis eða vanrækslu á börnum og hvort það búi yfir þekkingu til að greina einkenni ofbeldis eða vanrækslu á börnum. Einnig hvers vegna starfsmaður tilkynnir ekki um ofbeldi eða vanrækslu á börnum verði hann þess var. Niðurstöður voru að lokum bornar saman við þær sem fram komu á Selfossi 2007. Rannsóknin leiddi í ljós að starfsfólk hafði almennt ekki verið upplýst um tilkynningarskyldu sína og um einkenni ofbeldis og vanrækslu, þegar það hóf störf. Það kom þó greinilega í ljós að starfsfólk í leikskólum Akureyrarbæjar er meðvitað um einkennin þrátt fyrir að hafa ekki fengið viðeigandi fræðslu og upplýsingar varðandi þessi málefni þegar það hóf störf. Við samanburð rannsóknanna kom í ljós talsverður munur á menntunarstigi og starfsaldri þátttakenda sem hefur mögulega áhrif á þann mun sem birtist í niðustöðunum. |
---|