Ásatrú á Íslandi við upphaf 21. aldar. Uppruni, heimsmynd og helgiathafnir

Uppruni Rannsóknin sýnir að túlkun og endursköpun á heiðnum trúarbrögðum frá því fyrir kristnitöku hafi jafnvel hafist áður en kristnin var orðin ráðandi í Norður Evrópu. Endursköpunin heldur áfram gegnum endurreisnartímabilið á 13. öld, endurreisnina hina síðari, lærdómsöld, rómantíska tímabilið, n...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eggert Sólberg Jónsson 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6363
Description
Summary:Uppruni Rannsóknin sýnir að túlkun og endursköpun á heiðnum trúarbrögðum frá því fyrir kristnitöku hafi jafnvel hafist áður en kristnin var orðin ráðandi í Norður Evrópu. Endursköpunin heldur áfram gegnum endurreisnartímabilið á 13. öld, endurreisnina hina síðari, lærdómsöld, rómantíska tímabilið, nýrómantíkina og loks tímabilið í kjölfar heimsstyrjalda. Heimsmynd Heimsmynd er í eðli sínu persónubundið fyrirbæri en þó túlkuð í samræmi við hefðir, venjur, stofnanir og hugarfar þess hóps sem einstaklingurinn tilheyrir. Út frá þeim skilningi á hugtakinu sýnir rannsóknin fram á að ásatrúarmenn trúa á ólík öfl í náttúrunni sem hvert um sig hefur mátt sem annað afl hefur ekki. Trúarbrögðin eru því að einhverju leyti náttúrubundin en að sama skapi svæðisbundin enda þarf sjómaðurinn á öðrum öflum að halda en bóndinn svo dæmi sé tekið. Vegna þess hversu einstaklingsbundin trúarbrögðin eru er umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarskoðunum innan ásatrúarhópa sem og öðrum trúarbrögðum. Helgiathafnir Helgiár ásatrúarmanna markast af sólarganginum og árstíðaskiptum. Helgiathafnir ásatrúarmanna nefnast blót og má skipta þeim í fjóra flokka, þ.e. opnar athafnir sem tilheyra árshringnum, aðrar opnar athafnir, einstaklingsbundnar athafnir sem tilheyra lífshringnum og aðrar einstaklingsbundnar athafnir. Athafnirnar eru persónulegar og jafnvel einstaklingsbundnar. The title of this dissertation based on qualitative research is Ásatrú in Iceland at the Beginning of the 21st Century: Origins, World View and Rituals. The central part of the dissertation deals with the kind of phenomenon that the ásatrúarfélag represents in modern Icelandic society, but also examines how the fieldwork interviews demonstrate an particular interpretation of the past through the religious life of the members of the ásatrúarfélag. Another field of interest is the way in which Icelandic medieval literature is used as part of their religious life. The Ásatrúarfélag is a religious organization in Iceland, founded on the First Day of Summer, 1972. It was ...