Tímarnir breytast - en hvað um heimanámið? : notkun vefsins í heimanámi grunnskólanema

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Verkefnið er tvískipt; annars vegar fræðileg ritgerð og hins vegar geisladiskur sem inniheldur 10 hugmyndir að útfærslu á heimanámi á vef. Ætl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Sigurðardóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/627
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Verkefnið er tvískipt; annars vegar fræðileg ritgerð og hins vegar geisladiskur sem inniheldur 10 hugmyndir að útfærslu á heimanámi á vef. Ætlunin með ritgerðinni er að skoða hvort heimanám á vef sé raunhæfur möguleiki. Þá er mikilvægt að kanna tengda þætti, til dæmis hverjar helstu stefnur stjórnvalda varðandi upplýsingatækni eru, hvernig tölfræðin snýr að tölvueign landsmanna og hverjir helstu kostir og gallar tölvu og nets eru. Upplýsingalæsi skiptir hvern þann sem notast við tölvu miklu máli og því er tilefni til að staldra við og skoða það nánar. Farið er yfir þá möguleika sem tölvan býður upp á í kennslu og heimanámi auk þess sem markmið Aðalnámskrár eru skoðuð og fjallað er um heimanám og þær misjöfnu skoðanir sem eru uppi um það. Einnig er fjallað um heimanám á vef. Þær hugmyndir sem er að finna á meðfylgjandi geisladisk eru útskýrðar og stutt samantekt er svo á efni kaflanna. Ritgerðinni lýkur svo með lokaorðum. Heimanám á vef er raunhæf leið fyrir grunnskóla til að auka fjölbreytni heimanáms, auðvelda aðgengi að því og þar með færa það nær nútímanum, tækninni og því upplýsingasamfélagi sem nemendur þekkja og búa í.