Stefán. Saga þurfamanns og fjölskyldu hans í Reykjavík á árunum 1914 til 1935

Í þessari ritgerð er fjallað um sögu þurfamanns í Reykjavík á árunum 1914 til 1935. Það verður gert með því að rýna í þau gögn sem til eru um manninn í skjalasafni fátækranefndar. Einnig verður greint frá viðtölum við núlifandi ættingja hans og þeirra saga af honum sögð. Stefán Ág. Guðmundsson var e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Styrmir Reynisson 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Bak
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6253
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um sögu þurfamanns í Reykjavík á árunum 1914 til 1935. Það verður gert með því að rýna í þau gögn sem til eru um manninn í skjalasafni fátækranefndar. Einnig verður greint frá viðtölum við núlifandi ættingja hans og þeirra saga af honum sögð. Stefán Ág. Guðmundsson var eins og kom í ljós við rannsókn á lífi hans, ósköp venjulegur maður. Hann var fjölskyldu sinni góður og var ekki óreglumaður. Hann var fórnarlamb aðstæðna sinna. Hann fékk berkla á miðjum aldri og gekk með þá í að minnsta tuttugu og eitt ár uns þeir drógu hann til dauða. Mappa fátækranefndar um Stefán er þungamiðja rannsóknarinnar og stýrir því hvaða gögn eru önnur skoðuð við vinnslu verkefnisins. Spurningar sem vakna við lestur opinberra skjala verður reynt að svara með því að leita annað. Greint verður frá lífi Stefáns á árunum 1914 til 1935 og saga hans og fjölskyldunnar sögð. Markmiðið með verkefninu er að svara því hvort enn sé hægt að segja frá því hvaða manneskjur voru á bak við nöfnin í skjölum hins opinbera.