Bekkjarstjórnun

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Meginmarkmið ritgerðarinnar var að skoða hvað felst í bekkjarstjórnun. Bekkjarstjórnun er ferli sem kennarar þurfa að ganga í gegnum til að leiða nemendur sína best til náms. Skoðaðar voru ritaðar heimildir bæði á Netinu og í bókum. Einn...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hallveig Ósk Fróðadóttir, Hildur Bjarney Torfadóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Agi
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/623
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Meginmarkmið ritgerðarinnar var að skoða hvað felst í bekkjarstjórnun. Bekkjarstjórnun er ferli sem kennarar þurfa að ganga í gegnum til að leiða nemendur sína best til náms. Skoðaðar voru ritaðar heimildir bæði á Netinu og í bókum. Einnig gerðum við athugun í einum grunnskóla á nokkrum atriðum er snúa að bekkjarstjórnun. Við höfum komist að því að kennarar standa ekki einir í þessu ferli, að baki þeim er skólasamfélagið og hver skóli semur heildarstefnu þar sem fram kemur hvernig hann ætlar að ná góðri stjórnun og hvað hann ætlar að gera ef það tekst ekki. Það mikilvægasta sem kennari getur gert er að undirbúa og skipuleggja sig vel. Þá er hann undirbúinn fyrir kennslustundina og hið óvænta sem oft fylgir kennslunni. Með því að velja kennsluaðferðir við hæfi námsefnisins og nemendanna getur hann virkjað marga ef ekki alla nemendur sína. Til þess að virkja nemendur þarf virkt nám, þ.e. að nemendur fái til dæmis að kljást við verkefni sem hæfa getu þeirra. En það er bara hægt ef kennarinn hefur ásamt nemendunum sett reglur fyrir bekkinn sem allir fara eftir, þar með talið kennarinn. Einnig þarf kennarinn að vara sig á því hvernig hann kemur fram við nemendur og hvernig fas hans og líkamsstaða er því allt þetta gegnir veigamiklu hlutverki í samskiptum kennara og nemenda. Samskiptin þurfa að einkennast af virðingu og jákvæðni en það stuðlar að góðum og jákvæðum bekkjaranda. Þó svo foreldrar beri frumábyrgð á börnum sínum er það umsjónarkennarinn sem ber ábyrgð á nemendum sínum á skólatíma. Ef þessir tveir aðilar taka höndum saman og samræma boð og bönn ætti að vera léttara fyrir nemendur að vita til hvers er ætlast af þeim í skólanum og þar af leiðandi getur bekkjarstjórnunin orðið betri. Agavandamál og slæm hegðun í kennslustofu geta leitt til þess að kennara finnist kennarastarfið erfitt og jafnvel leiðinlegt. Til þess að ná sem bestum árangri í starfi þurfa kennarar að hafa góða bekkjarstjórnun. Með góðri bekkjarstjórnun býður kennarastarfið upp á ...