Leitir á Gnúpverjaafrétti

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð sem er lokaverkefni mitt til B.Ed. – prófs í kennaradeild Háskólans á Akureyri fjallar um leitir og fjallferðir á Gnúpverjaafrétt og á hvern hátt megi miðla þeim staðbundna fróðleik og þeirri reynslu sem fjallmenn á þessu s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Halla Sigríður Bjarnadóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/620
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð sem er lokaverkefni mitt til B.Ed. – prófs í kennaradeild Háskólans á Akureyri fjallar um leitir og fjallferðir á Gnúpverjaafrétt og á hvern hátt megi miðla þeim staðbundna fróðleik og þeirri reynslu sem fjallmenn á þessu svæði búa yfir til barna og unglinga í Gnúpverjahreppi Á hverju hausti leggja fjallmenn um land allt af stað á hestum sínum til að smala fé af fjalli og koma því til byggða áður en vetur skellur á. Þar eru fjallmenn í Gnúpverjahreppi engin undantekning. Að fara á fjall í leitir hefur tengst sögu og menningu okkar Íslendinga frá því skömmu eftir landnám. Með aukinni tækni og breyttum búskaparháttum má þó gera ráð fyrir að margt af því sem tengist þessum ferðum taki breytingum og jafnvel falli í gleymsku á komandi árum. Til að koma í veg fyrir það og varðveita þá sögu sem þessum ferðum eru tengdar þarf að miðla henni áfram til komandi kynslóða. Grenndarkennsla felst í því að miðla fróðleik um heimabyggð nemenda og gera þá læsa á nánasta umhverfi sitt bæði menningarlega, landfræðilega og náttúrufræðilega. Þannig eru meiri líkur á að nemendur verði meðvitaðri um heimabyggð sína og umhyggja þeirra fyrir því að viðhalda menningarverðmætum og sögu byggðarinnar og hlúa að umhverfinu eykst. Öflug grenndarkennsla eykur einnig líkurnar á því að nemendur festi rætur í heimabyggð. Fyrri hluti verkefnisins fjallar um grenndarfræði og grenndarkennslu. Hugtökunum sögu- grenndar- og umhverfisvitund eru gerð skil en þessar vitundir eru taldar undirstöður styrkrar sjálfsvitundar. Til þess að efla þessar vitundir hjá nemendum í Gnúpverjahreppi valdi ég að fjalla um leitir á afrétti Gnúpverja. Útskýrt er hvert fjallmenn fara á hverjum degi og hvaða örnefni koma fyrir þann dag. Einnig er saga örnefnanna skráð. Í seinni hluta verkefnisins er lögð fram tillaga að kennsluverkefni þar sem markmiðið er að stuðla að betri þekkingu nemenda í Gnúpverjahreppi á fjallferðum og leitum og örnefnum sem afréttinum tengjast. Sýnishorn af sögum og ljóðum ...