Fjölbreyttar kennsluaðferðir í stærðfræði

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um hvort þær kennsluaðferðir sem viðhafðar eru í stærðfræði á unglingastigi séu nægilega fjölbreyttar til að koma til móts við þarfir hvers og eins nemanda. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Eru...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Gunnhildur Gestsdóttir, Jóhanna Elín Björnsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/619
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessari ritgerð er fjallað um hvort þær kennsluaðferðir sem viðhafðar eru í stærðfræði á unglingastigi séu nægilega fjölbreyttar til að koma til móts við þarfir hvers og eins nemanda. Leitast er við að svara rannsóknarspurningunni: Eru kennsluaðferðir í stærðfræði á unglingastigi nægilega fjölbreyttar, þannig að þær taki mið af þörfum hvers og eins nemanda. Hún er síðan brotin niður í þrjár undirspurningar. Hvaða kennsluaðferðir viðhafa kennarar í stærðfræði á unglingastigi í grunnskólum? Út frá hverju vinnur kennarinn þegar hann hugar að hvaða kennsluaðferðir hann ætlar að viðhafa? Hvaða kröfur eru gerðar um kennsluaðferðir í aðalnámskrá grunnskóla og hvernig hefur sú þróun verið? Komið er inn á hvað felst í hugtakinu stærðfræði og tengingu hennar við daglegt líf. Kennsluaðferðir í stærðfræði á unglingastigi í grunnskóla eru athugaðar. Skoðaðar eru fræðilegar kenningar um nám og hvernig best er komið til móts við þarfir og getu hvers einstaklings og hvað einstaklingar læra á mismunandi hátt. Hugmyndir um stærðfræðikennslu í námskrám verða skoðaðar og gerð grein fyrir þróuninni. Einnig voru tekin viðtöl við sex starfandi stærðfræðikennara á unglingastigi í grunnskóla. Niðurstöður leiddu í ljós að allir viðmælendurnir eru meðvitaðir um hvað fjölbreyttar kennsluaðferðir eru mikilvægar fyrir nemendur til að koma til móts við þarfir hvers og eins. Mismunandi er hvað hentar hverjum og einum því einstaklingurinn lærir á ólíkan hátt. Að mati viðmælenda vantar fleiri kennslustundir til að viðhafa fjölbreyttar kennsluaðferðir svo þær samræmist því efni og þeim markmiðum sem aðalnámskrá kveður á um. Af viðtölunum að dæma hafa samræmd próf í stærðfræði í 10. bekk stýrandi áhrif á kennsluhætti og hefta jafnvel fjölbreytni. Útlistunarkennsla (töflukennsla), þrautalausnir, og hópvinna eru algengastar kennsluaðferða, meðan leitarnám, útikennsla og tenging við daglegt líf og umræður og spurnaraðferðir eru lítið notaðar. Framkoma og viðmót kennara skiptir máli í ...