Þróun opinberra útgjalda á Íslandi, 1998-2008. Er hægt að ná stjórn á útgjaldaþróuninni?

Í rannsókninni er þróun opinberra útgjalda á Íslandi á tímabilinu 1998-2008 skoðuð. Fjallað er um þróun útgjalda í einstökum málaflokkum og skoðað hvaða málaflokkar hafa hækkað mest. Útgjöld sveitarfélaga og ríkissjóðs eru skoðuð sérstaklega og þróunin hjá þeim borin saman. Í rannsókninni er einnig...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigfús Þ. Sigmundsson 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6182
Description
Summary:Í rannsókninni er þróun opinberra útgjalda á Íslandi á tímabilinu 1998-2008 skoðuð. Fjallað er um þróun útgjalda í einstökum málaflokkum og skoðað hvaða málaflokkar hafa hækkað mest. Útgjöld sveitarfélaga og ríkissjóðs eru skoðuð sérstaklega og þróunin hjá þeim borin saman. Í rannsókninni er einnig greint hvaða leiðir hafa verið farnar á Íslandi til þess að ná stjórn á opinberum útgjöldum og hvaða þætti þarf að bæta til þess að ná betri árangri. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að opinber útgjöld hafa hækkað umtalsvert á tímabilinu. Á árunum 1998-2008 hækkuðu opinber útgjöld á Íslandi um 81,8% en hækkunin var 55,9% sé tekið tillit til mannfjöldaþróunar. Þar sem erfitt er að nota árið 2008 til samanburðar, vegna falls íslensku bankanna, er tímabilið 1998-2007 skoðað sérstaklega. Á árunum 1998-2007 hækkuðu opinber útgjöld á Íslandi um 30,5% en hækkunin var 14,8% sé tekið tillit til mannfjöldaþróunar. Í rannsókninni er einnig skoðað til hvaða aðgerða hefur verið gripið til á Íslandi við stjórnun opinberra útgjalda og hvort ekki séu til leiðir til þess að ná meiri árangri. Niðurstaðan er sú að til eru leiðir til þess að stjórna opinberum útgjöldum. Þær leiðir þarf hins vegar að innleiða rétt til þess að árangur náist. The object of this thesis is to analyse the development of public expenditure in Iceland during the period of 1998-2008. Due to the irregularity of the year 2008 following the collapse of the banks and the Icelandic financial system resulting in substantial costs assumed by the Icelandic government the period 1998-2007 is also analysed separately. The expenditure of municipalitites and the government are examined separately and the different development of those compared. The main results are that there is a considerable increase in public expenditure in the period. In the period from 1998-2008 public expenditures in Iceland increased by 81,8% in total, or 55,9% per capita. In the period from 1998-2007 the increase amounted to 30,5%, or 14,8% per capita. The difference between the two ...