Ísland - Asía : tækifæri
Byrjað er að fjalla um kenningar í hagfræði og alþjóðaviðskiptum út frá fræðilegu sjónarmiði. Síðan er fjallað um almenna viðskiptaþróun á Íslandi á tuttugustu öld. Þá er fjallað um hvernig framtíðarhorfur eru í fjárfestingum Asíuríkja á Íslandi, hvernig koma megi markvisst í veg fyrir mistök í umge...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/6108 |
Summary: | Byrjað er að fjalla um kenningar í hagfræði og alþjóðaviðskiptum út frá fræðilegu sjónarmiði. Síðan er fjallað um almenna viðskiptaþróun á Íslandi á tuttugustu öld. Þá er fjallað um hvernig framtíðarhorfur eru í fjárfestingum Asíuríkja á Íslandi, hvernig koma megi markvisst í veg fyrir mistök í umgengni við ríki sem eiga sér ólíkan bakgrunn í menningu og hvernig megi undirbúa jarðveginn fyrir stærri verkefni þar sem biðlað er til samstarfs og samvinnu Asíulanda um ný viðskiptatækifæri. Farið er yfir framtíðarhorfur og tækifæri í viðskiptum við lönd í Asíu, væntanlega opnun siglinga um Norður-Íshafið og hvað það muni hafa í för með sér fyrir Ísland. Farið er yfir sérstakar þarfir helstu Asíulanda varðandi þjónustu við ferðamenn. Farið er yfir möguleika á því að tekið verði upp beint flug milli Asíu og Íslands. Þá er farið yfir möguleika á auknum útflutningi til Asíulanda. Fjallað er um hvaða útflutningur er vænlegastur til hinna ýmsu landa, hvaða þjónustu og verksvit Íslendingar geta boðið og hverng þeir geti styrkt ímynd sína. |
---|