Ísland - Asía : tækifæri

Byrjað er að fjalla um kenningar í hagfræði og alþjóðaviðskiptum út frá fræðilegu sjónarmiði. Síðan er fjallað um almenna viðskiptaþróun á Íslandi á tuttugustu öld. Þá er fjallað um hvernig framtíðarhorfur eru í fjárfestingum Asíuríkja á Íslandi, hvernig koma megi markvisst í veg fyrir mistök í umge...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rúrik Karl Björnsson 1987-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/6108
Description
Summary:Byrjað er að fjalla um kenningar í hagfræði og alþjóðaviðskiptum út frá fræðilegu sjónarmiði. Síðan er fjallað um almenna viðskiptaþróun á Íslandi á tuttugustu öld. Þá er fjallað um hvernig framtíðarhorfur eru í fjárfestingum Asíuríkja á Íslandi, hvernig koma megi markvisst í veg fyrir mistök í umgengni við ríki sem eiga sér ólíkan bakgrunn í menningu og hvernig megi undirbúa jarðveginn fyrir stærri verkefni þar sem biðlað er til samstarfs og samvinnu Asíulanda um ný viðskiptatækifæri. Farið er yfir framtíðarhorfur og tækifæri í viðskiptum við lönd í Asíu, væntanlega opnun siglinga um Norður-Íshafið og hvað það muni hafa í för með sér fyrir Ísland. Farið er yfir sérstakar þarfir helstu Asíulanda varðandi þjónustu við ferðamenn. Farið er yfir möguleika á því að tekið verði upp beint flug milli Asíu og Íslands. Þá er farið yfir möguleika á auknum útflutningi til Asíulanda. Fjallað er um hvaða útflutningur er vænlegastur til hinna ýmsu landa, hvaða þjónustu og verksvit Íslendingar geta boðið og hverng þeir geti styrkt ímynd sína.