Foreldrasamstarf : til mikils að vinna

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á mikilvægi foreldrasamstarfs og þær leiðir sem hægt er að fara til þess að bæta samstarfið. Tilgangurinn með viðfangsefninu er að fá bæði foreldra og kennara til þess að gera sér grein fyrir...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hulda Frímannsdóttir, Magna Júlíana Oddsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/607
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á mikilvægi foreldrasamstarfs og þær leiðir sem hægt er að fara til þess að bæta samstarfið. Tilgangurinn með viðfangsefninu er að fá bæði foreldra og kennara til þess að gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar samvinnu, því hún er lykillinn að farsælli skólagöngu barnanna. Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað um skólahald eins og það var hér á landi á 19. öld og rekjum við þróun þess til dagsins í dag. Miklar breytingar hafa orðið á skólastarfinu og ekki síst á samstarfi milli heimila og skóla. Einnig er fjallað um það sem talið er í Aðalnámskrá grunnskóla, vera hlutverk kennara og foreldra í því að búa nemendur undir líf og starf í okkar lýðræðislega þjóðfélagi. Því næst kemur kafli sem fjallar um foreldrasamstarf frá ýmsum sjónarhornum, til þess að opna augu foreldra og kennara fyrir ávinningnum af slíku starfi. En til þess að ávinningurinn verði sem mestur, verður að ríkja gagnkvæmt traust, virðing og trúnaður á milli heimila og skóla. En hafa skal hugfast að ýmsar hindranir geta komið upp í samstarfinu og því er mikilvægt að skólar séu með góð úrræði fyrir foreldra og kennara. Einnig er komið inn á þann þátt sem talinn er vega hvað þyngst í samstarfinu en það er heimanám nemenda. Í lok kaflans er foreldrasamstarfið skoðað út frá kenningum Joyce Epstein, en hún telur að jafn mikilvægt sé fyrir skólasamfélagið að vera í nánu sambandi við foreldra og nemendur. Þá lætur árangur samstarfsins venjulega ekki á sér standa. Að lokum er komið inn á leiðir til þess að auka samskipti heimila og skóla, þær leiðir sem við gerum skil eru foreldrasamningur, Mentor og PMT-foreldrafærni. Það er okkar álit, að með góðu og virku foreldrasamstarfi verði skólastarfið árangursríkara og auðveldara verði að komast hjá ýmsum vandamálum sem upp kunna að koma í skólasamfélaginu. En mikilvægt er að gagnkvæm virðing, traust og trúnaður ríki milli heimila og skóla því það er undirstaðan að góðri samvinnu. Ávinningurinn af slíku ...