Tónlist í hávegum höfð : mikilvægi tónlistar og tónlistarnáms

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessu verki er leitast við að finna svör við því hvort tónlist og tónlistarnám sé mikilvægt og þá aðallega í tengslum við nám barna. Þar að auki vakti það forvitni okkar hvort einhver munur væri á viðhorfum nemenda sem voru í tónlistar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eyrún Anna Finnsdóttir, Rósa Björg Gísladóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/605
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í þessu verki er leitast við að finna svör við því hvort tónlist og tónlistarnám sé mikilvægt og þá aðallega í tengslum við nám barna. Þar að auki vakti það forvitni okkar hvort einhver munur væri á viðhorfum nemenda sem voru í tónlistarnámi og nemenda sem ekki voru í tónlistarnámi til náms. Í fyrri hluta verksins er ætlunin að varpa ljósi á hvernig tónlist getur haft áhrif á nám og er fjallað um ofurnám og Mozart-áhrifin. Auk þess er umfjöllun um ólíkt tónlistarnám eins og Suzukiaðferðina og áhrif tónlistanáms á námsgetu. Fjallað er um fjölgreindakenningu Gardners en samkvæmt henni má flétta og samþætta tónlist við aðrar námsgreinar. Það er mikilvægt að börn, bæði í leik- og grunnskóla, fái tækifæri til að kynnast og iðka tónlist. Í síðari hluta verkefnisins er fjallað um könnun sem gerð var á viðhorfi nemenda til náms. Gerður var samanburður á nemendum sem stunduðu tónlistarnám og nemendum sem ekki voru í tónlistarnámi. Niðurstöðurnar sýna að nemendur sem stunduðu tónlistarnám höfðu öðruvísi viðhorf til námsins. Tónlist leikur stórt hlutverk í daglegu lífi mannsins og það er margt sem börn fara á mis við ef að tónlistarþátturinn í námi þeirra er vanræktur. Það eru margar leiðir færar til að auka tónlistarkennslu barna í leik- og grunnskólum. Til eru fjölbreyttar leiðir sem vekja áhuga barna og ætti því að vera mögulegt að ná til sem flestra. Helsti vandinn í dag er að það vantar menntaða tónmenntakennara auk þess sem almennt kunnáttuleysi bæði leik- og grunnskólakennara hefur hamlandi áhrif á það að tónlist sé notuð í daglegu starfi barna.