Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu. Heimaþjónusta við aldraða

Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu felur í sér samhæfingu ólíkra þjónustuþátta. Litið er á samþætta þjónustu sem leið til að tryggja gæði þjónustunnar og veita hana með hagkvæmari hætti. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að leita svara við því hvað einkenni árangursrík samþættingarverkefni,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Björk Reykdal 1957-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5990
Description
Summary:Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu felur í sér samhæfingu ólíkra þjónustuþátta. Litið er á samþætta þjónustu sem leið til að tryggja gæði þjónustunnar og veita hana með hagkvæmari hætti. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að leita svara við því hvað einkenni árangursrík samþættingarverkefni, hver sé þáttur starfsfólks í velgengni samþættingarverkefna og hverjir séu notendur samþættrar heimaþjónustu við aldraða. Niðurstöður rannsókna og reynsla af samþættingarverkefnum bæði hér á landi og erlendis voru skoðaðar til að svara þessum spurningum. Gögn úr ADHOC rannsókninni voru nýtt til að nálgast svar við því hverjir væru notendur samþættrar heimaþjónustu við aldraða. Megindlegar rannsóknaraðferðir voru nýttar við úrvinnslu gagna. Rannsóknir draga fram ákveðna þætti sem eru sameiginlegir þeim verkefnum sem hafa gengið vel. Hér er m.a. um að ræða eina þjónustugátt, markvissa notkun upplýsingatækni, þjónustustjórnun og samþættingu fjármögnunar. Mikilvægt er að starfsfólk hafi sameiginlega sýn og upplifi sameiginlegt eignarhald á verkefninu. Myndun sterkrar liðsheildar þar sem gagnkvæmt traust ríkir hefur mikil og jákvæð áhrif á árangur. Niðurstöður tölfræðiúrvinnslu á gögnum úr ADHOC rannsókninni leiddi í ljós að sá hópur sem fékk bæði heimahjúkrun og félagslega þjónustu var með skerta færni á ýmsum sviðum, hátt í helmingur upplifði verki daglega, lyfjanotkun var mikil, helmingur notaði hjálpartæki innanhúss og 70% utanhúss. Integration of health and social care consists of coordination of different services. The integration is seen as a way to increase the quality of services and to provide it in a more effective way. The objective of this thesis is to answer the question what characterizes successful integration projects, what part personnel play in the success of these projects and to identify the users of integrated care for the aged. In order to answer these questions research findings and case studies of integration projects, both in Iceland and abroad were studied. Data from the ADHOC study was used to ...