Ferðavenjur almennings á Tröllaskaga

Markmið verkefnisins er að rannsaka samgöngumynstur og ferðavenjur almennings á utanverðum Tröllaskaga. Byrjað er á því að fara yfir samgöngur í sögulegu samhengi og skoðaðar kenningar um búferlaflutninga þeir tengjast breytingum í samgöngukerfinu. Haustið 2009 var gerð könnun á vegum Háskólans á Ak...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Viðar Einarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5871
Description
Summary:Markmið verkefnisins er að rannsaka samgöngumynstur og ferðavenjur almennings á utanverðum Tröllaskaga. Byrjað er á því að fara yfir samgöngur í sögulegu samhengi og skoðaðar kenningar um búferlaflutninga þeir tengjast breytingum í samgöngukerfinu. Haustið 2009 var gerð könnun á vegum Háskólans á Akureyri á ferðavenjum fólks á Tröllaskaga vegna tilkomu Héðinsfjarðarganga. Könnunin var lögð fyrir íbúa í sveitarfélaginu Fjallabyggð og þar var safnað ítarlegum upplýsingum um ferðir bæði vegna vinnu og eins vegna annarra erinda. Markmið verkefnisins er að greina þessi gögn og athuga hvort munur er á ferðavenjum fólks eftir algengum bakgrunnsþáttum á borð við menntun og kynferði. Ennfremur að bera niðurstöðurnar saman við tiltækar upplýsingar um ferðavenjur fólks annarsstaðar á landinu.