Áhrifaþættir starfsánægju : rannsókn í leikskólum í Húnavatnssýslum

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. -gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er fjallað um nokkra þætti sem hafa áhrif á starfsánægju starfsmanna í leikskólum. Til að kanna hvort þeir þættir sem við völdum að skrifa um hafi áhrif á starfsánægju starfsmanna leikskólanna voru te...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðrún Lára Magnúsdóttir, Harpa Hermannsdóttir 1977-, Sigríður Helga Sigurðardóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/587
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. -gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í ritgerðinni er fjallað um nokkra þætti sem hafa áhrif á starfsánægju starfsmanna í leikskólum. Til að kanna hvort þeir þættir sem við völdum að skrifa um hafi áhrif á starfsánægju starfsmanna leikskólanna voru tekin viðtöl við leiðbeinendur og leikskólakennara í leikskólum í Húnavatnssýslum, það er á Blönduósi, Hvammstanga og Skagaströnd. Niðurstöður sýna að starfsmenn í leikskólum telja að ákveðnir þættir í starfsumhverfi þeirra hafi áhrif á starfsánægju. Viðmælendur telja það vera mikilvægt að fá viðbrögð fyrir störf sín og að hæfileikar þeirra og sterkar hliðar séu nýttir. Þeir telja að það hvetji starfsmanninn áfram til að gera betur. Starfsumhverfi segja starfsmenn að hafi mikil áhrif og er það einnig sá þáttur sem nauðsynlega þarf að bæta úr, því fram kemur í niðurstöðum að leikskólarnir búi við mjög þröngan húsakost og er starfsmannaaðstöðu mjög ábótavant. Einnig komu fram hugmyndir til úrbóta í svörum starfsmanna. Í umfjöllun okkar skoðum við niðurstöður og berum þær saman við okkar hugmyndir og reynslu, ásamt því að við lítum til framtíðar og veltum því fyrir okkur hvernig hægt sé að nýta þessar niðurstöður til að efla og styrkja starf starfsmanna í leikskólum almennt.