Nútímafræði við Háskólann á Akureyri : frá upphafi til dagsins í dag

Viðfangsefni þessa lokaverkefnis er að komast að því út á hvað nútímafræði gengur og hvað einstaklingum sem að komið hafa að náminu á einn eða annan hátt finnst um námið. Nútímafræði hefur verið kennd við Háskólann á Akureyri frá árinu 2000 en þó ekki allan tímann í sömu mynd. Farið verður yfir sögu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Lilja Björnsdóttir, Elísabet Katrín Friðriksdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5847
Description
Summary:Viðfangsefni þessa lokaverkefnis er að komast að því út á hvað nútímafræði gengur og hvað einstaklingum sem að komið hafa að náminu á einn eða annan hátt finnst um námið. Nútímafræði hefur verið kennd við Háskólann á Akureyri frá árinu 2000 en þó ekki allan tímann í sömu mynd. Farið verður yfir sögu námsins og hvernig það hefur þróast til dagsins í dag. Það er einnig komið inn á hvaða viðhorf nútímafræðingar frá Háskólanum á Akureyri hafa á náminu og gagnrýni þeirra. Í ritgerðinni er farið yfir helstu niðurstöður og hvaða úrbætur mætti gera á náminu. Við gagnasöfnun kom í ljós að ekki er mikið til af skráðum heimildum um nútímafræði svo höfundar ákváðu að taka viðtöl við þá sem komið hafa að náminu. Leitað var svara hjá ýmsum fræðimönnum sem tengjast nútímafræðinni á einn eða annan hátt. Einnig var haft samband við brautskráða nemendur og tekin voru viðtöl við þá sem hægt var að nálgast, aðrir svöruðu tölvupósti. Ákveðið var að tala einnig við núverandi nemendur og sjá hvað þeim finnst um námið. Helstu niðurstöður úr viðtölunum voru hversu mikil ánægja er á þessu námi þótt að allir geti gagnrýnt það á einn eða annan hátt. Helstu gallarnir liggja þó í helstu kostunum og það er hversu opið námið er. Það voru þó allir sammála um að námið bjóði upp á mikla möguleika að því loknu.