Nýting safna í skólastarfi : Minjasafnið á Akureyri

Verkefnið er lokað Nýting safna í skólastarfi - Minjasafnið á Akureyri - er heiti á eftirfarandi lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2010. Viðfangsefni verkefnisins er grenndarfræði, safnakennsla og nýting safna í skólastarfi. Grenndarfræði er fræðigrein þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Rósa Halldórsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5846
Description
Summary:Verkefnið er lokað Nýting safna í skólastarfi - Minjasafnið á Akureyri - er heiti á eftirfarandi lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2010. Viðfangsefni verkefnisins er grenndarfræði, safnakennsla og nýting safna í skólastarfi. Grenndarfræði er fræðigrein þar sem staðarauðlindir náttúru og menningar eru notaðar sem útgangspunktur í öllu námi með það að markmiði að gera börn læs á nánasta umhverfi sitt, landfræðilegt, náttúrulegt og menningarlegt. Í hnotskurn gengur aðferðin út á að fara frá hinu nálæga til hins fjarlæga, frá hinu þekkta til hins óþekkta og frá hinu hlutbundna til hins óhlutbundna. Grenndarfræðinni er ætlað að styrkja sjálfsvitund einstaklinga og á þeirri leið koma söguvitund, grenndarvitund og umhverfisvitund til skjalanna. Söfn hafa verið í mikilli sókn um allan heim á síðustu áratugum. Hlutverk þeirra verður sífellt mikilvægara á tímum örra breytinga og mikilvægt er að gestum sé sem auðveldast að skoða og skilja það sem fyrir augu ber. Rannsóknir sýna að grunnskólanemendum finnast safnaheimsóknir áhugaverðar en þær auka fjölbreytni í kennslu auk þess sem þær geta hjálpað nemendum að kynnast sögu og menningu heimabyggðar sinnar og auðveldað þeim að skilja samspil manns og náttúru. Verkefnið skiptist í þrjá meginhluta. Í fyrsta hlutanum er fræðileg umfjöllun um grenndarfræði, fjölgreindarkenningu Gardner, hugsmíðahyggju og söfn og safnkennslu. Í öðrum hluta verkefnisins er fjallað um Akureyri og farið er stuttlega yfir sögu bæjarins, landslag hans, náttúrufar og stöðu hans í dag. Þá er fjallað um safnaumhverfi bæjarins og sagt stuttlega frá helstu söfnum. Í þriðja og síðasta hluta verkefnisins eru settar fram kennsluhugmyndir að því hvernig nýta megi Minjasafnið á Akureyri í námi grunnskólabarna í bænum.