Birtingarmynd umhyggju og virðingar í uppeldisstjórnun grunnskóla á Akureyri

Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. prófs í Kennaradeild við Hug- og Félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri 2010. Hver er birtingarmynd umhyggju og virðingar í uppeldisstjórnun grunnskóla á Akureyri er spurning sem reynt er að leita svara við í þessari ritgerð. Við efnisöflun voru heim...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristján Eldjárn Sighvatsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5843
Description
Summary:Þessi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. prófs í Kennaradeild við Hug- og Félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri 2010. Hver er birtingarmynd umhyggju og virðingar í uppeldisstjórnun grunnskóla á Akureyri er spurning sem reynt er að leita svara við í þessari ritgerð. Við efnisöflun voru heimsíður grunnskólanna skoðaðar og athugað hvað þær hefðu fram að færa um efnið. Rannsóknarspurningin var einnig send á alla skólastjóra grunnskólanna þannig að þeir gætu einnig brugðist við henni. Heimasíður grunnskólanna er upplýsingamiðill fyrir foreldra og forráðamenn. Brýnt er að heimasíðurnar gefi upplýsingar um starfsemi skólanna þannig að foreldrar og forráðamenn geti fylgst vel með hvað er að gerast innan veggja þeirra. Gildin umhyggja og virðing eru samofin í okkar daglegu samskiptum og eru það sem ætti að einkenna allt skólastarf. Þau eru stór þáttur í uppeldisstjórnun og að tileinka sér þau sem lífssýn er stór partur af því að vera kennari. Aðalnámskrá grunnskólanna: Almennur hluti segir að starf grunnskóla eigi að mótast af gildum lýðræðislegs samstarfs, kristins siðgæðis og umburðarlyndis. Umhyggja og virðing eru gildi sem flokkast í hóp þeirra gilda. Grunnskólar á Akureyri hafa allir innleitt eða eru í innleiðingarferli á uppeldisstefnum eins og SMT-skólafærni, Uppbyggingarstefnu eða Jákvæðum aga. Það er stefna skóladeildar Akureyrarbæjar að allir grunnskólar styðjist við viðurkennda uppeldisstefnu. Gildi og dygðir hafa meira vægi innan Uppbyggingarstefnunnar og Jákvæðs aga heldur en hjá SMT-skólafærni þó svo að unnið sé með gildi og dygðir í öllum þessum uppeldisstefnum.