Starfsdeildir : starfsdeildin í Grundarfirði

Verkefnið er lokað Í ritgerðinni er fjallað um hvernig hægt er að koma til móts við námsþarfir nemenda. Ísland er aðili að alþjóðlegum sáttmálum sem hafa það markmið að tryggja almennt jafnræði í samfélaginu. Jafnræðið er tryggt með lögum og reglugerðum um skóla án aðgreiningar eða skóla fyrir alla....

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Dagbjört Lína Kristjánsdóttir, Eygló Bára Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5842
Description
Summary:Verkefnið er lokað Í ritgerðinni er fjallað um hvernig hægt er að koma til móts við námsþarfir nemenda. Ísland er aðili að alþjóðlegum sáttmálum sem hafa það markmið að tryggja almennt jafnræði í samfélaginu. Jafnræðið er tryggt með lögum og reglugerðum um skóla án aðgreiningar eða skóla fyrir alla. Skóli fyrir alla skal taka við öllum nemendum burt séð frá fötlun, þjóðerni, uppruna, litarhætti eða trú. Til að mæta þörfum hvers og eins þarf skólinn að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti. Samvinna allra aðila sem að menntun nemenda koma er mikilvægur þáttur til árangurs. Fjölbreytt námsúrræði ættu að leiða til þess að nemendur með námsörðugleika eigi möguleika á því að verða nýtir þjóðfélagsþegnar þegar grunnskólanámi lýkur. Starfsdeildir eru eitt af þeim úrræðum sem skólar geta boðið upp á. Markmiðið með rekstri starfsdeilda er að þroska og bæta við þekkingu nemenda. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir því á hvaða hátt þrjár starfsdeildir við grunnskóla koma til móts við námsþarfir nemenda ásamt því að greint er frá viðhorfum foreldra til starfsdeildar Grunnskóla Grundarfjarðar. Með námi í starfsdeildum eru nemendur hvattir á þann hátt sem hentar hverjum og einum. Í ritgerðinni er einnig greint frá rannsókn höfunda þar sem kannað var hvernig þetta námsúrræði skilaði nemendum í áframhaldandi nám. Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð. Tekin voru viðtöl við foreldra, skólastjóra og umsjónarmann deildarinnar og gögn starfsdeildanna voru skoðuð. Markmið viðtalanna var að leita eftir reynslu foreldranna af starfsdeildinni og að fá fram hver sýn þeirra væri á starfsdeildina. Misræmi kom fram í rannsókninni á því sem skólastjórnendur lögðu upp með við stofnun starfsdeildarinnar og því hvernig foreldrar upplifa starf hennar. ABSTRACT The dissertation deals with ways of responding to pupils’ specific needs with regard to their studies. Iceland is a signatory to international conventions whose aim is to ensure general social equality. This equality is guaranteed by legislation and regulations relating ...