Orkunotkun heimila á Íslandi og mögulegur sparnaður

Verkefnið fjallar um orkunotkun heimila á Íslandi og möguleika á sparnaði. Rannsókn var gerð á orkunotkun á einu heimili á Akureyri. Spurningalisti var lagður fyrir fjölskylduna um hvernig notkun þeirra væri á rafmagni, hitaveituvatni og bifreið þeirra. Rafmagns- og hitaveitureikningar voru fengnir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnheiður Ásbjarnardóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5778
Description
Summary:Verkefnið fjallar um orkunotkun heimila á Íslandi og möguleika á sparnaði. Rannsókn var gerð á orkunotkun á einu heimili á Akureyri. Spurningalisti var lagður fyrir fjölskylduna um hvernig notkun þeirra væri á rafmagni, hitaveituvatni og bifreið þeirra. Rafmagns- og hitaveitureikningar voru fengnir hjá Norðurorku. Markmið verkefnisins var að koma með hugmyndir að litlum breytingum á notkun sem ekki hefðu mikil áhrif á lífsgæði fjölskyldunnar. Áhrif á kostnað og orkunotkun heimilisins voru reiknuð við þessar breytingar. Sparnaðurinn var einnig reiknaður fyrir meðalnotkun á landinu. Niðurstaða verkefnisins var sú að litlar breytingar á rafmagns- og hitaveitunotkun hefðu lítil áhrif á útgjöld fjölskyldunnar eða orkunotkun. En ef gerðar yrðu breytingar á öllum heimilum landsins gæti þetta verið talsverð upphæð sem sparast og einnig orka. Fjölskyldan getur hins vegar minnkað kostnað og orkunotkun við eldsneyti um helming við það að skipta bifreið sinni, sem er mjög eyðslufrek, út með sparneytnum bíl af sömu stærð. Einnig myndi koltvíoxíðlosun minnka talsvert við skiptin. Ef allir Íslendingar myndu kaupa sparneytnari bíla væri hægt að spara mikið eldsneyti, kostnaður lækkar og ekki þyrfti að flytja inn eins mikið af olíu.