Gisti- og veitingahús í Flatey á Skjálfandaflóa : viðskiptaáætlun

Verkefnið er lokað B.Sc. verkefni þetta var unnið í áfanganum LOK 2106 og er hluti náms við Viðskiptadeild Viðskipta- og Raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Í þessu verkefni var unnin viðskiptaáætlun fyrir gistihús í Flatey á Skjálfandaflóa. Í aðdraganda verkefnisins var unnin markaðsrannsókn með...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Óttar Ingi Oddsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5765
Description
Summary:Verkefnið er lokað B.Sc. verkefni þetta var unnið í áfanganum LOK 2106 og er hluti náms við Viðskiptadeild Viðskipta- og Raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Í þessu verkefni var unnin viðskiptaáætlun fyrir gistihús í Flatey á Skjálfandaflóa. Í aðdraganda verkefnisins var unnin markaðsrannsókn meðal innlendra og erlendra ferðaþjónustuaðila til að varpa ljósi á helstu þarfir og stærð markhópa. Út frá rannsókn var áætluð nýting gistiherbergja og þannig myndaður grunnur fyrir arðsemi- og verðmatsútreikninga. Í fyrstu köflum verkefnisins er lagður fræðilegur grunnur að markaðs- og fjármálahluta viðskiptaáætlunarinnar auk þess sem farið er yfir aðferðafræði verkefnisins. Í síðari hluta viðskiptaáætlunar eru fjármálaútreikningar sem eru undirstaða niðurstöðukafla verkefnisins sem er ætlað að svara eftirfarandi rannsóknar¬¬spurningum: Skilar fjárfesting í gisti- og veitingaþjónustu í Flatey á Skjálfandaflóa jákvæðri arðsemi verkefnis? • Er markaður til staðar fyrir starfsemi af þessu tagi? • Hver þarf gistinýting að vera svo fjárfestingin skili jákvæðri arðsemi eigin fjár? • Hversu langan tíma tekur það slíka fjárfestingu að skila jákvæðri arðsemi eigin fjár? Helstu niðurstöður eru þær að fjárfesting sem ráðast þarf í verði er talin skila jákvæðri arðsemi. Því er mælt með að ráðist verði í framkvæmdina. Samkvæmt markaðsrannsókn kom í ljós að markaður er til staðar fyrir gisti- og veitingaþjónustu í Flatey en mikilvægt er að kynningarstarfsemi sé markviss og skipulögð. Helstu tillögur voru þær að mælt var með áframhaldandi uppbyggingu í Flatey. Nauðsynlegt þótti hins vegar að leggja í frekari markaðsrannsóknir til að kortleggja markaði og byggja þannig grunn að farsælum rekstri. Lykilorð verkefnis: Viðskiptaáætlun, arðsemi, markaðsrannsókn, Flatey á Skjálfandaflóa, gistihús, fuglaskoðun.