Að fanga náttúruna í Krossanesborgum : grenndarkennsla í leikskólum

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefnið er grenndarkennsla í leikskólum og vettvangsferðir í Krossanesborgir í Eyjafirði í tengslum við hana. Grenndarkennsla er ekki g...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ingibjörg Þórunn Helgadóttir, Telma Ríkharðsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/572
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefnið er grenndarkennsla í leikskólum og vettvangsferðir í Krossanesborgir í Eyjafirði í tengslum við hana. Grenndarkennsla er ekki gamalt hugtak. Rætur hennar liggja í umhverfismenntinni en hún nær þó yfir víðara svið. Í grenndarkennslu er markmiðið að gera börnin læs á nánasta umhverfi sitt, bæði landfræðilega, náttúrulega og menningarlega. Viðfangsefnin miðast við að farið sé frá hinu nálæga til hins fjarlæga, frá því þekkta til hins óþekkta, frá því hlutbundna til hins óhlutbundna. Í ritgerðinni er leitast við að sýna á hvern hátt nýta má afmörkuð svæði, eins og t.d. Krossanesborgir, til vettvangsferða með leikskólabörnum og kennslu tengdri þeim. Fjallað er um kenningar fjögurra fræðimanna um nám og þroska barna og sýnt fram á hvernig kenningar þeirra tengjast kennslu með þessum hætti. Með því að fara með börnin endurtekið á sama svæði, teljum við að þau eigi auðveldara með að byggja ofan á fyrri reynslu og þar með ná þau að festa betur í sessi upplifanir sínar og efla eigin sjálfsmynd. Á þann hátt búum við börnin betur undir það að mynda sér eigin skoðanir síðar meir um náttúruna og umhverfið. Ferðir í Krossanesborgir bjóða upp á margar leiðir í umfjöllun og úrvinnslu, en við tökum fyrir þrjá þætti, menningu, náttúru og fuglalíf og gerum þeim skil í þessari ritgerð.