Bakkafjöruhöfn : áhrif nýrrar hafnar á Vestmannaeyjar

Verkefnið er lokað til janúar 2012 Almennar samgöngur um Ísland er sífellt verið að bæta og munu gömlu malarvegirnir brátt heyra sögunni til. Hins vegar hefur samgönguleiðin á milli Vestmannaeyja og fasta landsins orðið útundan í þessum efnum, þar til árið 2006, en þá var loks tekin ákvörðun um að h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Freyja Kristín Rúnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5707
Description
Summary:Verkefnið er lokað til janúar 2012 Almennar samgöngur um Ísland er sífellt verið að bæta og munu gömlu malarvegirnir brátt heyra sögunni til. Hins vegar hefur samgönguleiðin á milli Vestmannaeyja og fasta landsins orðið útundan í þessum efnum, þar til árið 2006, en þá var loks tekin ákvörðun um að höfn í Bakkafjöru yrði raunin, öðru nafni Landeyjahöfn. Þann 1. júlí 2010 verður því brotið blað í sögu samgangna á milli lands og Eyja með því að hefja siglingar á milli Vestmannaeyja og Bakkafjöruhafnar í stað Þorlákshafnar. Er þetta mikil samgöngubót fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum og er meginmarkmið þessa verkefnis að skoða þá kosti og þau tækifæri sem koma til með að opnast með tilkomu Bakkafjöruhafnar. Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum er skoðuð sérstaklega og þeir möguleikar sem opnast með auknum ferðamannastraumi til Eyja. Skoðað er hvort og hvernig auknar tekjur myndu skila sér inn í bæjarsjóð með þessum aukna ferðamannastraumi. Niðurstöður leiddu í ljós að strax við opnun Bakkafjöruhafnar má reikna með aukinni aðsókn ferðamanna í sund, þar sem sund er vinsælasta afþreying sem ferðamenn greiða fyrir. Þar af leiðandi munu þjónustutekjur vegna aðgöngueyris í sund skila sér sem auknar tekjur inn í bæjarsjóð. Síðan, með tíma og reynslu af Bakkafjöru, munu auknar tekjur skila sér inn í bæjarsjóð í formi útsvars, aukinna tekna vegna fasteignagjalda og annarra þjónustutekna en aðgöngueyris í sund.