Landfræðilegar sveiflur fasteignaverðs

Hlutfallslegar verðbreytingar íbúðarhúsnæðis eftir landssvæðum er viðfangsefni þessarar rannsóknar. Unnið var út frá rannsóknarspurningunni: Eru verðsveiflur á íbúðaverði ólíkar eftir landsvæðum? Verkefnið gengur út á að meta staðbundnar sveiflur á verði íbúðarhúsnæðis á móti verðsveiflum alls marka...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Björn Guðmundsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5697
Description
Summary:Hlutfallslegar verðbreytingar íbúðarhúsnæðis eftir landssvæðum er viðfangsefni þessarar rannsóknar. Unnið var út frá rannsóknarspurningunni: Eru verðsveiflur á íbúðaverði ólíkar eftir landsvæðum? Verkefnið gengur út á að meta staðbundnar sveiflur á verði íbúðarhúsnæðis á móti verðsveiflum alls markaðarins. Unnin var reynslu rannsókn á fyrirliggjandi gögnum frá Fasteignaskrá Íslands á sölutölum alls selds íbúðarhúsnæðis í landinu á árunum 1990-2006. Gögnin voru flokkuð niður eftir staðsetningu þeirra og keyrð var línuleg aðhvarfsgreining til að meta verðsveiflu mismunandi svæða. Í ljós kom að verð eigna á stór-höfuðborgarsvæðið sveiflast mest og síðan minnka sveiflurnar eftir því sem að fjær dregur því. Ein af niðurstöðunum er að þó að verð á höfuðborgarsvæðinu sveiflist mest þá sveiflast verð í Reykjavík minna heldur en í nágrannasveitarfélögunum. Önnur niðurstaða er að svæði nálægt höfuðborgarsvæðinu bæði í Suðurkjördæmi og Norðvesturkjördæmi sveiflast meira heldur en svæðin sem eru fjær. Eyjafjarðarsvæðið og Norðurþing sveiflast minna í verði en önnur svæði landsins. Lykilhugtök • Fasteignaverð • Línuleg aðhvarfsgreining • Verðsveiflur • CAPM-módelið