Aðlögun lífríkis í Varmá í Mosfellsbæ að minnkandi mengun. Samanburður áranna 1977-9 og 2010.

Ísland er fámennt og strjálbýlt og því er mengun vatna minna vandamál þar en í öðrum löndum. Um allan heim er verið að draga úr mengun en aðeins fá vötn eru algerlega ósnortin af mannavöldum. Þau sem eru ennþá ósnortin eru aðallega fjallavötn og vötn á þeim stöðum þar sem er lítill mannfjöldi, eins...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sif Ólafsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5529
Description
Summary:Ísland er fámennt og strjálbýlt og því er mengun vatna minna vandamál þar en í öðrum löndum. Um allan heim er verið að draga úr mengun en aðeins fá vötn eru algerlega ósnortin af mannavöldum. Þau sem eru ennþá ósnortin eru aðallega fjallavötn og vötn á þeim stöðum þar sem er lítill mannfjöldi, eins og á Íslandi. Hryggleysingjar geta sagt okkur mikið um uppbyggingu mengaðra vatna og hvort mengunaráhrifa gætir ennþá. Eftir rannsókn í Varmá í Mosfellsbæ 1977 og 1979 kom í ljós að róttækar breytingar þurfti til að Varmá yrði ekki skólpfráveita fyrir þéttbýlið. Undanfarin ár hefur verið unnið að hreinsun hennar. Niðurstöður þessara rannsókna á vatnadýrum sýnir að lífræn mengun hefur minnkað verulega í ánni síðustu þrjá áratugi, en enn gætir hennar að nokkru leyti. Fjölbreytileiki botndýra minnkar niður eftir ánni þar sem hún rennur um þéttbýlið og framhjá hæsnabúi, en áhrif mengunar eru minni en þau voru fyrir 30 árum.