Þróun kennsluaðferða við tungumálakennslu : samþætting tungumála við aðrar námsgreinar grunnskólans
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Hvernig má efla enskukennslu í grunnskólum á Íslandi? Í þessari ritgerð er fjallað um samþætta kennslu í tungumálum við aðrar námsgreinar grunnskólans. Samþætt kennsla er þegar viðfangsefni í námi eru sótt til fleiri en einnar námsgreina...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2006
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/551 |
Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Hvernig má efla enskukennslu í grunnskólum á Íslandi? Í þessari ritgerð er fjallað um samþætta kennslu í tungumálum við aðrar námsgreinar grunnskólans. Samþætt kennsla er þegar viðfangsefni í námi eru sótt til fleiri en einnar námsgreinar. Athyglinni er sérstaklega beint að enskri tungu vegna útbreiðslu enskunnar og stöðu hennar sem alþjóðamáls í heiminum í dag. Í upphafi er rakið hvernig kennsluaðferðir við tungumálakennslu hafa þróast og hvernig áherslur hafa breyst þegar kemur að kennslu í tungumálum. Áherslan hefur færst frá því að erlent tungumál sé kennt á móðurmáli nemenda yfir í að nota móðurmálið sem minnst. Þar kemur að hugmyndinni bak við samþætta kennslu á tungumáli og öðrum námsgreinum. Skoðað er hvaða áhrif samþætting tungumálakennslunnar hefur á móðurmál og áhugahvöt nemenda. Ásamt því er farið í gegnum Aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla til að skoða hvort eitthvað megi finna þar sem mælir með eða á móti slíkri samþættingu. Að lokum eru settar fram vangaveltur um val á námsefni og kennsluaðferð sem hentað gæti samþættri kennslu í ensku og öðrum námsgreinum. |
---|