Stagbrú yfir Ölfusá. Hönnun og athuganir á mismunafærslum

Til stendur að reisa nýja brú yfir Ölfusá á þjóðvegi 1 við Selfoss. Verkfræðistofan EFLA hefur unnið að ýmsum hugmyndum varðandi brúargerð og einnig skoðað meðal annars tvö möguleg brúarstæði. Annað liggur um Efri Laugardælaeyju en hitt er um 500 m norðar, nálægt gamla ferjustað Laugardælaferju. Þet...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólína Kristín Sigurgeirsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5478
Description
Summary:Til stendur að reisa nýja brú yfir Ölfusá á þjóðvegi 1 við Selfoss. Verkfræðistofan EFLA hefur unnið að ýmsum hugmyndum varðandi brúargerð og einnig skoðað meðal annars tvö möguleg brúarstæði. Annað liggur um Efri Laugardælaeyju en hitt er um 500 m norðar, nálægt gamla ferjustað Laugardælaferju. Þetta verkefni takmarkast við eina brúargerð og annað brúarstæðið. Það er að mestu leyti hönnunarverkefni þar sem farið er í gegnum hönnunarferil hefðbundinnar stagbrúar. Þar sem verkefnið er einnar annar verkefni gafst ekki tími til að fara í öll þau atriði sem skoða þarf þegar brú er hönnuð. Ákveðið var að einblína á brúardekkið og hanna það fyrir þeim þversniðskröftum sem á það verka af völdum hinna ýmsu álagstilfella. Jafnframt voru skoðaðir þeir kraftar sem verkuðu á turninn en hann ekki hannaður sérstaklega. Mögulegt er að sprunga liggi í farvegi Ölfusár og því ákveðin hætta á að fyrirhuguð brú liggi yfir sprungu sem getur hreyfst í jarðskjálfta. Könnuð voru áhrif af völdum mismunafærslu á stöplum brúarinnar. Til að ná fram dýnamískum áhrifum færslunnar á brúna voru búnar til tímaraðir sem létu færsluna gerast á stuttum tíma sem vænta má þegar misgengi rifnar. Notuð var tímaraðagreining til að meta svörun brúarinnar.