Uno dos tres, toca la pared: Propuesta para la enseñanza del español dentro del sistema escolar primario de Islandia

Í ritgerðinni sem hér fer á eftir og unnin er til fullnustu BA gráðu í spænsku frá Háskóla Íslands er fjallað um stöðu spænskukennslu í grunnskólum á Íslandi. Sjónum er sérstaklega beint að því hvað ber að hafa í huga þegar námsefni er þróað fyrir nemendur efstu bekkja grunnskóla. Við öflun heimilda...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Böðvarsdóttir 1977-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Spanish
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/5324
Description
Summary:Í ritgerðinni sem hér fer á eftir og unnin er til fullnustu BA gráðu í spænsku frá Háskóla Íslands er fjallað um stöðu spænskukennslu í grunnskólum á Íslandi. Sjónum er sérstaklega beint að því hvað ber að hafa í huga þegar námsefni er þróað fyrir nemendur efstu bekkja grunnskóla. Við öflun heimilda við ritgerðasmíðina var send út könnun vorið 2008 í grunnskóla landsins og spurst fyrir um spænskukennslu á grunnskólastigi og fylgir hún ritgerðinni sem viðauki. Í ritgerðinni er í fyrsta lagi fjallað um mikilvægi spænskrar tungu og útbreiðsla hennar borin saman við móðurmál okkar Íslendinga. Í öðru lagi er fjallað um mismunandi kennsluaðferðir erlendra tungumála og mikilvægi hvata í tungumálanámi. Þá er jafnframt fjallað um mikilvægi aldurs nemandans í tungumálanámi og hvernig nálgun hans á viðfangsefninu breytist með auknum þroska og aldri. Þá er einnig rætt um kennsluefni og það viðmið sem Evrópska tungumálamappan setur tungumálakennurum í Evrópu. Tilurð hennar má rekja til samræmingar og samhæfingar tungumálanáms innan álfunnar svo auðveldara sé að meta færni og hæfni nemanda í ólíkum löndum hennar. Niðurstaða rannsóknarinnar færði heim sönnur fyrir nauðsyn gerðar námsefnis og í viðauka er að finna tiltekna tillögu þar að lútandi. Höfundur hefur hannað drög að kennslubók í spænsku sem erlends máls fyrir efstu bekki grunnskóla sem ætlunin er að vinna áfram og koma í tilraunakennslu á næstu misserum.