Starfsmannastefna Vestmannaeyjabæjar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Stærstu sveitarfélög á Íslandi hafa í flestum tilfellum mestu mannaforráð í atvinnulífinu. Þess vegna er mikilvægt að einblína á starfsmannamál, að vel sé haldið utan um þau og að þeim sé viðhaldið. Stjórnendur Vestmannaeyjabæjar hafa áh...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/518
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Stærstu sveitarfélög á Íslandi hafa í flestum tilfellum mestu mannaforráð í atvinnulífinu. Þess vegna er mikilvægt að einblína á starfsmannamál, að vel sé haldið utan um þau og að þeim sé viðhaldið. Stjórnendur Vestmannaeyjabæjar hafa áhuga á því að setja niður skriflega starfsmannastefnu til að skýra markmið og gera þau mælanlegri. Einnig að auðvelda starfsmönnum að skilja hvaða réttindi og skyldur þeir hafa. Í þessu verkefni voru gerð drög að starfsmannastefnu fyrir Vestmannaeyjabæ. Til þess að það væri mögulegt var gerður samanburður á tveimur mótuðum starfsmannastefnum hjá sveitafélögum Akureyrar- og Reykjanesbæjar. Tekin voru viðtöl við starfsmannastjóra þeirra og fyrrverandi bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar. Einnig voru sendir út spurningalistar til starfsmanna Vestmannaeyjabæjar til að kanna þörfina fyrir starfsmannastefnu. Þeir þættir sem eru í drögum að starfsmannastefnunni eru þeir þættir sem starfsmönnum þykir þörf fyrir í starfsmannamálum. Miðað við viðbrögð hluta starfsmanna gagnvart könnuninni mátti finna fyrir vissri hræðslu og óvissu. Þá má telja að starfsmönnum líði ekki vel í vinnunni og að þeir séu óöruggir með störf sín. Þetta sýnir að mikil þörf er á úrbótum í mannauðsstjórnun. Lykilorð: Mannaforráð Mannauðsstjórnun Starfsmannastjóri Starfsmannastefna Starfsmenn Sveitarfélag