Markaðssamstarf : lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsveit

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lokaverkefni þetta er unnið í áfanganum LOK 2106 við Ferðaþjónustubraut Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri í janúar til maí 2005. Markmið verkefnisins er að rannsaka lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsveit og leitas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dögg Matthíasdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/496
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lokaverkefni þetta er unnið í áfanganum LOK 2106 við Ferðaþjónustubraut Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri í janúar til maí 2005. Markmið verkefnisins er að rannsaka lítil og meðalstór ferðaþjónustufyrirtæki í Þingeyjarsveit og leitast við að svara rannsóknarspurningunum: • Hverjir eru helstu þættir markaðssetningar hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit? • Hvert er viðhorf til markaðssamstarfs í framtíðinni? • Eru lítil og meðalstór fyrirtæki í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit að nýta sér fræðslu og tækifæri til aukinnar þekkingar? Til að svara rannsóknarspurningunum var gerð símakönnun meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit og var svarhlutfall 72,2%. Helstu niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að ekkert fyrirtækjanna starfar eftir markaðsáætlun og þau hafa takmarkað bolmagn til markaðssetningar. Viðhorf til markaðssamstarfs í framtíðinni er jákvætt, mjög mikill áhugi er á samstarfi innan Þingeyjarsveitar. Enginn forsvarsmanna fyrirtækjanna hafði sótt námskeið Fræþings síðustu 12 mánuði en allir nema tveir höfðu aflað sér aukinnar þekkingar hjá öðrum opinberum aðilum. Á grundvelli rannsóknarinnar er lagt til að aðferðir við markaðssetningu ferðamannastaðar og samstarfskeppni verði notaðar í Þingeyjarsveit.