Mikligarður og endalok samvinnuverslunar í Reykjavík
Kaupfélagsverslun var lengi vel ráðandi verslunarform á landsbyggðinni en annað var raunin á höfuðborgarsvæðinu. Þar var KRON höfuðvígi kaupfélagsverslunar sem þrátt fyrir stærð sína náði aldrei ráðandi stöðu á markaði. Í ört vaxandi samkeppni og erfiðara samkeppnisumhverfi undir lok áttunda áratuga...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2025
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/1946/49447 |
Summary: | Kaupfélagsverslun var lengi vel ráðandi verslunarform á landsbyggðinni en annað var raunin á höfuðborgarsvæðinu. Þar var KRON höfuðvígi kaupfélagsverslunar sem þrátt fyrir stærð sína náði aldrei ráðandi stöðu á markaði. Í ört vaxandi samkeppni og erfiðara samkeppnisumhverfi undir lok áttunda áratugarins ákvað Samband íslenskra sveitafélaga, SÍS, í samráði við KRON og önnur kaupfélög á höfuðborgarsvæðinu að blása til sóknar og reyna að auka hlut sinn á ört stækkandi markaði. KRON var örlagavaldur í ferlinu og áttu þessi félög eftir að stofna og reka verslunina Miklagarð sem breytti matvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu og alls landsins til frambúðar. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessum áætlunum SÍS og KRON eða hvernig fór fyrir samvinnuverslun á höfuðborgarsvæðinu. Þessari ritgerð er ætlað að gefa skýra mynd á stórbrotnum áformum forsvarsmanna samvinnuhreyfingarinnar um aukna markaðsstöðu á höfuðborgarsvæðinu og hvernig fór fyrir þeim. Niðurstaðan var endalok samvinnuverslunar í Reykjavík. |
---|